Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.7.–13.8.2024

2

Í vinnslu

  • 14.8.–13.10.2024

3

Samráði lokið

  • 14.10.2024

Mál nr. S-150/2024

Birt: 16.7.2024

Fjöldi umsagna: 1

Áform um lagasetningu

Dómsmálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Áform um frumvarp til breytinga á lögum um vegabréf

Niðurstöður

Ein umsögn barst um áformin sem höfð verður til hliðsjónar við vinnslu frumvarps um breytingu á vegabréfalögum. Þegar frumvarpið verður tilbúið verður það kynnt í Samráðsgátt og óskað umsagna.

Málsefni

Kynnt eru áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vegabréf nr. 136/1998.

Nánari upplýsingar

Í júní 2023 voru samþykkt á Alþingi ný lög um nafnskírteini nr. 55/2023. Með lögunum var lagður grunnur fyrir útgáfu nýrra nafnskírteina sem standast þær kröfur sem gerðar eru til öruggra persónuskilríkja, meðal annars samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1157. Við samningu frumvarps til nýrra laga um nafnskírteini var m.a. horft til ákvæða laga um vegabréf nr. 136/1998. Fyrir liggur hins vegar að vegabréfalögin voru samþykkt á Alþingi árið 1998 og hefur ýmis þróun átt sér stað frá þeim tíma, má sem dæmi nefna auknar kröfur sem gerðar eru í lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Þá hefur framkvæmdin leitt í ljós að lagfæra þarf tiltekin ákvæði.

Við samningu frumvarps til nýrra laga um nafnskírteini var tekið mið af því sem betur þykir mega fara í vegabréfalögum, en fyrir liggur að lagfæring á þeim ákvæðum í síðarnefndu lögunum stendur eftir. Mikilvægt er að fullt samræmi sé á milli þeirra laga sem varða útgáfu persónuskilríkja hér á landi, þ.e. vegabréfa og nafnskírteina. Þykir því tímabært að leggja til nokkrar breytingar á vegabréfalögum með það fyrir augum að ná enn betra samræmi.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (12)

Umsjónaraðili

Skrifstofa réttinda einstaklinga

dmr@dmr.is