Til umsagnar
11.7.–15.8.2024
Í vinnslu
16.8.–5.9.2024
Samráði lokið
6.9.2024
Mál nr. S-145/2024
Birt: 10.7.2024
Fjöldi umsagna: 1
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Ein umsögn barst frá Sjúkrahúsinu á Akureyri innan samráðsfrest. Þá barst einnig umsögn frá Landspítalanum eftir að samráðsfresti liðnum. Í báðum umsögnum voru settar fram vangaveltur varðandi einstakar lagagreinar og hvernig þær yrðu túlkaðar eða beitt í framkvæmd. Brugðist verður við athugasemdunum með því að skýra einstök lagaákvæði betur í greinagerð. Athugasemdirnar eru ekki taldar þess eðlis gera þurfi efnisbreytingar á frumvarpinu sem slíku. Stefnt er að því að frumvarpið verði svo lagt fram á haustþingi 2024.
Með frumvarpinu verður nafni Nýs Landspítala ohf. breytt og hlutverk félagsins og verkefni, sem það sinnir að miklu leyti nú þegar, formfest og skilgreind nánar.
Með frumvarpinu er mælt fyrir um hlutverk NLSH ohf. sem fær jafnframt nýtt nafn eða Fasteignir sjúkrahúsa ohf. enda munu verkefni félagsins ekki einskorðast við Landspítalann sem slíkan þó þau verkefni munu áfram vega þyngst í starfsemi félagsins a.m.k. næstu ár. Félagið mun því byggja áfram á núverandi grunni NLSH ohf. þó að nafni þess sé breytt og að það annist jafnframt undirbúning og framkvæmd bygginga þar sem þriðja stigs heilbrigðisþjónusta er veitt í samræmi við ákvarðanir stjórnvalda. Í frumvarpinu er kveðið nánar á um tilgang og markmið félagsins sem snýr að utanumhaldi og uppbyggingu slíkra bygginga. Í frumvarpinu eru einnig að finna ákvæði um eignaumsýslu, stjórn, heimildir til samningagerðar og stofnunar dótturfélaga sem taka mið af öðrum sambærilegum lögum, t.a.m. lögum heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu nr. 81/2020.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stjórnunar og umbóta
fjr@fjr.is