Mál nr. S-139/2024

Birt: 5.7.2024

Fjöldi umsagna: 0

Annað

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Tillaga að flokkun fimm virkjunarkosta

Málsefni

Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir tillögu að flokkun virkjunarkostanna Bolaöldu, Tröllárvirkjunar, Hvanneyrardalsvirkjunar, Skúfnavatnavirkjunar og Hamarsvirkjunar.

Nánari upplýsingar

Í lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun eru skilgreind tvö umsagnarferli. Þetta er seinna umsagnarferlið um tillögu verkefnisstjórnar, sem gert er ráð fyrir að taki 12 vikur.

Í eftirfarandi greinargerð setur verkefnisstjórn 5. áfanga rammaáætlunar fram tillögur að flokkun fimm virkjunarkosta, þ.e. eins í jarðvarma, Bolaalda, og fjögurra í vatnsafli, Tröllárvirkjun, Hvanneyrardalsvirkjun, Skúfnavatnavirkjun og Hamarsvirkjun.

Verkefnisstjórn fól fjórum faghópum sínum að vinna greiningar og leggja mat á áhrif virkjunarkostanna. Þær greiningar liggja nú fyrir og fylgja niðurstöður þeirra sem fylgiskjöl með greinargerðinni. Verkefnisstjórn hefur einnig fengið kynningar á og farið yfir niðurstöður úr vinnu faghópanna og metið í samhengi við greiningar á öðrum þáttum fyrir viðkomandi virkjunarkosti. Á þeim grunni gerir verkefnisstjórn tillögu til ráðherra að röðun þessara virkjunarkosta og eru þær tillögur hér settar fram í opið, almennt, 12 vikna umsagnarferli.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (20)

Umsjónaraðili

ust@ust.is