Til umsagnar
4.7.–14.8.2024
Í vinnslu
15.8.2024–
Samráði lokið
Mál nr. S-137/2024
Birt: 4.7.2024
Fjöldi umsagna: 11
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um lagasetningu fyrir skilvirkari leyfisveitingar á sviði umhverfis- og orkumála
Ráðuneytið vinnur að verkefni með Orkustofnun, Umhverfisstofnun og ytri ráðgjöfum sem snýst um skilvirkni leyfisveitinga á sviði umhverfis- og orkumála með endurhönnun ferla, endurskoðun regluverks, stafrænum lausnum og breytingum á verklagi. Markmiðið er að einfalda og stytta afgreiðslutíma og tryggja um leið gæði og gagnsæi þessara ferla.
Leyfisveitingar sem varða orkumál eru í fyrsta forgangi en heildarverkefnið nær þó einnig til annarra málefnasviða sem Umhverfis- og orkustofnun er ætlað að sinna samkvæmt frumvarpi um sameiningu stofnana.
Áður hefur verið óskað eftir tillögum að skilvirkari leyfisveitingum vegna þessa verkefnis sbr. mál nr. S-94/2024 í samráðsgáttinni.
Áformað er að vinna frumvarp til þeirra lagabreytinga sem teljast nauðsynlegar svo að úrbætur á leyfisveitingaferlum raungerist.
Áform þessi eru opin til samráðs til 14. ágúst nk.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar
urn@urn.is