Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 2.–31.7.2024

2

Í vinnslu

  • 1.–15.8.2024

3

Samráði lokið

  • 16.8.2024

Mál nr. S-134/2024

Birt: 2.7.2024

Fjöldi umsagna: 2

Áform um lagasetningu

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál

Áform um endurskoðun laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs nr. 45/2019

Niðurstöður

Tvær umsagnir bárust um áformaskjalið sem verða teknar til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps. Þegar það frumvarp liggur fyrir verður það sett í Samráðsgátt og gefinn kostur á athugasemdum.

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir endurskoðun laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs nr. 45/2019.

Nánari upplýsingar

Áformin sem hér eru kynnt eru endurskoðun laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs nr. 45/2019. Í núgildandi lögum er ákvæði til bráðabirgða þar sem kveðið er á um að eftir 1. janúar 2024 skulu lögin endurskoðuð og getur ráðherra þá lagt niður starf samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs að fenginni umsögn hagsmunaaðila.

Núgildandi löggjöf um samskiptaráðgjafa er unnin á grundvelli vinnu starfshóps sem skipaður var árið 2918 í kjölfar yfirlýsinga íþróttakvenna undir myllumerkinu #ég líka (#metoo) ásamt frásögnum þeirra. Frá því að samskiptaráðgjafi tók til starfa í byrjun árs 2020 hefur þörfin fyrir úrræðið sýnt sig. Hlutverk hans er að stuðla að öryggi þeirra sem taka þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Starf hans hefur þróast mikið á þeim tíma sem liðinn er frá gildistöku laganna og því brýnt að endurskoða lögin með tilliti til þess.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa ráðuneytisstjóra og innri þjónustu

mrn@mrn.is