Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 2.–31.7.2024

2

Í vinnslu

  • 1.–15.8.2024

3

Samráði lokið

  • 16.8.2024

Mál nr. S-133/2024

Birt: 2.7.2024

Fjöldi umsagna: 3

Áform um lagasetningu

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál

Áform um frumvarp til laga um íþróttir

Niðurstöður

Þrjár umsagnir bárust um áformaskjalið sem verða teknar til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps. Þegar það frumvarp liggur fyrir verður það sett í Samráðsgátt og gefinn kostur á athugasemdum.

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um ný heildarlög um íþróttir.

Nánari upplýsingar

Áformin sem hér eru kynnt eru um ný heildarlög um íþróttir. Í nýjum lagabálki verði núgildandi löggjöf uppfærð og færð til nútímans og tryggt að lagaumhverfi íþrótta endurspegli lykilþætti og kröfur sem nútímasamfélag gerir.

Þekking og fagmennska í íþróttastarfi hefur tekið miklum breytingum síðan núgildandi íþróttalög voru samþykkt og er mikilvægt að skoða hvort gert sé nægilega góð skil á þeim mikilvægu þáttum íþróttastarfsins í því umhverfi sem ríki og sveitarfélög hafa skapað starfseminni.

Markmið frumvarpsins er að ný löggjöf gefi aukna möguleika á að styðja betur við íþróttahreyfinguna. Stefnt er að því að ný löggjöf muni nútímavæða lagaumhverfi um íþróttir í samstarfi við sveitarfélög og íþróttahreyfinguna.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa ráðuneytisstjóra og innri þjónustu

mrn@mrn.is