Til umsagnar
2.7.–16.8.2024
Í vinnslu
17.8.2024–
Samráði lokið
Mál nr. S-132/2024
Birt: 2.7.2024
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Áformað er að breyta lögum um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017, o.fl. lögum til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2019/2175 (ESAs Review).
Unnið er að upptöku reglugerðar (ESB) 2019/2175 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska bankaeftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 1094/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 1095/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga, reglugerð (ESB) 2016/1011 um vísitölur sem notaðar eru sem viðmiðanir í fjármálagerningum og fjárhagslegum samningum eða til að mæla árangur fjárfestingarsjóða og reglugerð (ESB) 2015/847 um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna. Einnig reglugerð (ESB) 2019/2176 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1092/2010 um þjóðhagsvarúðareftirlit með fjármálakerfinu á sviði Evrópusambandsins og um stofnun Evrópska kerfisáhætturáðsins og tilskipun (ESB) 2019/2177 um breytingu á tilskipun 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga og tilskipun (ESB) 2015/849 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka. Markmið breytinganna sem gerðar eru með þessum Evrópugerðum er að stuðla að skilvirkara og stöðugra eftirliti með fjármálamörkuðum, sem var talið mikilvægt til að meðal annars eyða viðleitni markaðsaðila til að finna það aðildarríki sem væri með veikasta eftirlitið og til að hraða samþættingu markaða. Með breytingunum eru tilteknar heimildir evrópsku eftirlitsstofnananna skýrðar og styrktar og lagðar til nýjar valdheimildir á tilteknum sviðum. Einnig eru gerðar breytingar á stjórnskipulagi evrópsku eftirlitsstofnananna til að skerpa á ákvarðanatöku og auka sjálfstæði þeirra gagnvart lögbærum yfirvöldum aðildarríkjanna.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
postur@fjr.is