Til umsagnar
28.6.–15.8.2024
Í vinnslu
16.8.2024–
Samráði lokið
Mál nr. S-130/2024
Birt: 28.6.2024
Fjöldi umsagna: 2
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Markmið lagabreytingarinnar er að gera minniháttar lagfæringar á lögunum og framlengja gildistíma laganna.
Lög nr. 160/2011 um svæðisbundna flutningsjöfnun tóku gildi 1. janúar 2012 og hafa það markmið að styðja framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði.
Byggðastofnun fer með framkvæmd laganna og veitir styrki til framleiðenda á grundvelli úthlutunarreglna sem mælt er fyrir um í lögunum og reglugerð nr. 121/2019 um flutningsjöfnunarstyrki.
Með frumvarpi þessu verða lagðar til lagfæringar á lögunum auk þess sem gildistími laganna verður framlengdur.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sveitarfélaga og byggðamála
irn@irn.is