Til umsagnar
28.6.–26.7.2024
Í vinnslu
27.7.–25.8.2024
Samráði lokið
26.8.2024
Mál nr. S-129/2024
Birt: 28.6.2024
Fjöldi umsagna: 2
Áform um lagasetningu
Heilbrigðisráðuneytið
Sjúkrahúsþjónusta
Athugasemdir bárust frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri (SAk). Frumvarpið er efnislega samhljóða þeirri breytingu sem gerð var í júní 2022 þegar samþykkt var breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu sem kvað á um skipun stjórnar yfir Landspítala. Þá komu einnig fram í umsögnum ákall um mikilvægi tiltekinnar fagstéttar innan stjórnar auk athugasemda er varða hlutverk og ábyrgð stjórnar, skilyrði um hæfi stjórnarmanna, lengd skipunar og réttindi stjórnarmanna og aðkomu fagráðs spítalans að ákvarðanatöku stjórnar.
Markmið frumvarpsins er að styrkja stjórnun Sjúkrahússins á Akureyri með því að veita lagastoð fyrir því að stjórn verði skipuð yfir spítalann sem gegni því hlutverki að tryggja frekari faglegan rekst
Með frumvarpinu er ætlunin er að veita því lagastoð að stjórn verði skipuð yfir Sjúkrahússinu á Akureyri sem gegni því hlutverki að tryggja frekari faglegan rekstur spítalans. Stjórninni er ætlað, í samráði við forstjóra, að marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra og hlutverk stofnunarinnar samkvæmt lögum. Henni er einnig ætlað að yfirfara árlega starfsáætlun hennar og ársáætlun og leggja sjálfstætt mat á þær og þau markmið og mælikvarða sem þar eru sett fram og gera ráðherra grein fyrir mati sínu innan tveggja vikna frá því að ársáætlun hefur verið lögð fyrir ráðherra til samþykktar. Þá er stjórninni ætlað að taka afstöðu til ákvarðana sem eru mikils háttar eða óvenjulegar í starfsemi stofnunarinnar, svo sem varðandi skipurit stofnunarinnar.
Árið 2022 var bætt við gildandi lög ákvæði um stjórn Landspítala og hefur breytingin gefið góða raun. Samstarf forstjóra Landspítala og stjórnar hefur gengið vel og reksturinn sömuleiðis en nefna má að árið 2023 var þriðja árið í röð þar sem Landspítali var rekinn innan fjárheimilda.
Þar sem vel hefur tekist til á Landspítala þykir nú rétt að sama skref verði stigið með Sjúkrahúsið á Akureyri sem er ein af stærstu stofnunum ríkisins, bæði hvað varðar starfsmannafjölda og fjárheimildir. Því er lagt til að bætt verði við gildandi lög um heilbrigðisþjónustu sérstöku ákvæði um stjórn Sjúkrahússins á Akureyri sem verði samhljóða ákvæði laganna um stjórn Landspítala.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa heilbrigðisþjónustu
hrn@hrn.is