Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.6.–14.8.2024

2

Í vinnslu

  • 15.2024–19.8.2026

3

Samráði lokið

  • 20.8.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-125/2024

Birt: 25.6.2024

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Áform um breytingu á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum (einföldun málsmeðferðar)

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust

Málsefni

Áformað er að lagfæra lagatilvísanir og orðalag í lögunum, auk þess að einfalda málsmeðferð framsalsmála og réttarbeiðna.

Nánari upplýsingar

Áformað er að lagfæra lagatilvísanir og orðalag í lögunum, auk þess að setja í lög ákvæði um réttarbeiðnir sem sendar eru frá Íslandi og færa það hlutverk til ríkissaksóknara í ákveðnum tilfellum. Þá verður lagt til að breyta uppröðun á ákvæðum II. kafla laganna um meðferð framsalsmála til að lagaákvæðin séu í betra samræmi við framvindu framsalsmála. Þá er áformað að setja inn reglugerðarheimild sem kveður á um hvaða alþjóðasamningar eru í gildi um gagnkvæma réttaraðstoð og ríkissaksóknara hefur verið falið að afgreiða beiðnir, á grundvelli þeirra samninga, beint og án aðkomu dómsmálaráðuneytisins. Í núgildandi lögum er þetta talið upp í 2. mgr. 22. gr. laganna en betur færi á því að hafa þetta í reglugerð þar sem þá þyrfti ekki að fara í lagabreytingar í hvert sinn sem íslensk stjórnvöld undirgangast nýja alþjóðasamninga á sviði réttaraðstoðar í sakamálum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (11)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa almanna- og réttaröryggis

dmr@dmr.is