Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 5.6.–1.7.2024

2

Í vinnslu

  • 2.7.2024–

Samráði lokið

Mál nr. S-113/2024

Birt: 5.6.2024

Fjöldi umsagna: 11

Stöðumat og valkostir

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Áform um heildstæða stefnumótun fullnustumála (Grænbók)

Málsefni

Dómsmálaráðuneytið kynnir áform um heildstæða stefnumótun fullnustumála. Stefnumótunin verður unnin í víðtæku samráði og hefur verkefnastjórn verið skipuð til að leiða verkefnið áfram.

Nánari upplýsingar

Mál yfir tvö þúsund einstaklinga sem hlotið hafa refsingu koma til meðferðar hjá Fangelsismálastofnun á ári hverju. Því til viðbótar koma einnig til meðferðar mál einstaklinga sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald. Mikilvægt er að fullnusta refsinga sé örugg, fyrirsjáanleg og skilvirk. Þannig eru bæði almenn og sérstök varnaðaráhrif refsinga tryggð, dregið úr líkum á ítrekun brota og stuðlað að farsælli endurhæfingu og aðlögun dómþola að samfélaginu.

Með framangreint í huga verður unnin greining á stöðu fullnustumála á Íslandi og helstu áskorunum í málaflokknum, m.a. er varðar húsnæði og aðbúnað fanga, þar á meðal gæsluvarðhaldsfanga. Jafnframt verður unnin greining á stöðu kvenna í fangelsi og annarra hópa, t.d. hinsegin einstaklinga og fatlaðra, auk þess sem fjallað verður um aðbúnað og rétt barna sem eiga foreldra í afplánun. Enn fremur þarf að rýna aðbúnað og menntun starfsmanna fangelsa og annarra aðila sem starfa innan fullnustukerfisins með það að markmiði að bæta öryggi bæði starfsmanna og dómþola, sem og bæta starfsumhverfi starfsmanna.

Önnur úrræði en fangelsi verða einnig metin, m.a. rafrænt eftirlit og samfélagsþjónustu í stað fangelsisvistar sem og úrræði í lok afplánunar, t.d. áfangaheimili og reynslulausn. Þá verður sú þjónusta sem fangar hafa aðgang að í fangelsum rýnd, svo sem heilbrigðisþjónusta, félagsleg þjónusta og menntun með markmið um endurhæfingu dómþola í huga. Loks verða álitamál vegna innheimtu dómsekta greind.

Stefnumótunarvinnan mun leiða til útgáfu grænbókar sem er stöðumats- og valkostagreining og í framhaldinu verður unnin stefna í formi hvítbókar þar sem settar verða fram tillögur að úrbótum í málaflokknum.

Vinnsla grænbókar og hvítbókar mun fara fram í viðtæku samráði við hagaðila og sérfræðinga á sviðinu sem og annarra ráðuneyta og stofnana sem bera ábyrgð og koma að vinnu með dómþolum með einhverjum hætti.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (25)

Umsjónaraðili

Skrifstofa almanna- og réttaröryggis

dmr@dmr.is