Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.4.–21.5.2024

2

Í vinnslu

  • 22.5.–25.6.2024

3

Samráði lokið

  • 26.6.2024

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-95/2024

Birt: 30.4.2024

Fjöldi umsagna: 7

Drög að reglugerð

Heilbrigðisráðuneytið

Sjúkrahúsþjónusta

Drög að reglugerð um vottorð, álitsgerðir, faglegar yfirlýsingar og skýrslur heilbrigðisstarfsmanna

Niðurstöður

Unnið verður frekar að drögum að reglugerð m.a. með hliðsjón af þeim sjö umsögnum sem bárust.

Málsefni

Óskað er umsagna um drög að reglugerð um vottorð, álitsgerðir, faglegar yfirlýsingar og skýrslur heilbrigðisstarfsmanna.

Nánari upplýsingar

Með drögunum er lagt til að sett verði reglugerð um útgáfu vottorða, álitsgerða, faglegra yfirlýsinga og skýrslur heilbrigðisstarfsmanna sem ráðherra er heimilt að setja samkvæmt 3. mgr. 19. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012. Reglugerðardrögin byggja á drögum sem samin voru af starfshópi sem ráðherra skipaði um útgáfu vottorða sem skilaði skýrslu og drögum að reglugerð í janúar 2023. Þau drög fóru í samráð í Samráðsgátt stjórnvalda í kjölfarið, drögin hafa tekið breytingum og eru nú birt til samráðs að nýju.

Í 19. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, er fjallað um vottorð, álitsgerðir, faglegar yfirlýsingar og skýrslur. Heilbrigðisstarfsmönnum ber að gæta varkárni, nákvæmni og óhlutdrægni við útgáfu vottorða, álitsgerða, faglegra yfirlýsinga og skýrslna og votta það eitt er þeir vita sönnur á og er nauðsynlegt í hverju tilviki.

Í drögunum eru m.a. lagðar til skilgreiningar á vottorðum og álitsgerðum.

Reglugerðardrögin hafa áður verið birt í Samráðsgátt: Mál nr. S-12/2023

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa lýðheilsu og vísinda

hrn@hrn.is