Til umsagnar
11.–22.3.2024
Í vinnslu
23.3.–9.7.2024
Samráði lokið
10.7.2024
Mál nr. S-78/2024
Birt: 11.3.2024
Fjöldi umsagna: 6
Drög að stefnu
Forsætisráðuneytið
Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
Alls bárust sex umsagnir. Í flestum umsögnum kom fram ánægja með þingsályktunina. Flestar athugasemdir sem bárust snéru að jafnlaunastaðfestingu og jafnlaunavottun. Athugasemdirnar sem bárust leiddu til breytinga í einu tilviki en verða að öðru leyti hafðar til hliðsjónar við framkvæmd áætlunarinnar.
Forsætisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2024–2027.
Samkvæmt 26. gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal ráðherra leggja fyrir Alþingi á fjögurra ára fresti tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum til fjögurra ára í senn. Um er að ræða drög að þingsályktunartillögu um áttundu framkvæmdaáætlun stjórnvalda í kynjajafnréttismálum.
Til samræmis við jafnréttislög hefur áætlunin verið unnin að fengnum tillögum allra ráðuneyta og að viðhöfðu samráði við Jafnréttisstofu, auk þess sem hliðsjón var höfð af umræðum á jafnréttisþingi 2022. Jafnframt var tekið mið af niðurstöðum umræðuhópa frá fundum samráðsvettvangs um jafnréttismál.
Tillögu forsætisráðherra til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum til næstu fjögurra ára er ætlað að ná utan um nokkur af brýnustu verkefnunum í málaflokknum. Ekki er um að ræða tæmandi upptalningu á þeim verkefnum sem brýn eru talin. Tillagan felur í sér áætlun sem skiptist í sex kafla og 44 verkefni sem áætlað er að framkvæma á gildistíma hennar. Er þessu fyrirkomulagi ætlað að tryggja að áherslur og forgangsröðun stjórnvalda á sviði kynjajafnréttismála birtist með skýrum hætti.
Efnisflokkun framkvæmdaáætlunar í jafnréttismálum 2024-2027:
1. Kyn, áhrif og þátttaka
2. Kynjuð tölfræði og mælaborð
3. Jafnrétti á vinnumarkaði og kynbundinn launamunur
4. Kynbundið og kynferðislegt ofbeldi
5. Jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi
6. Alþjóðastarf
Sérstakt mælaborð sem birt verður á vefsvæði forsætisráðuneytisins mun sýna fram á framgang einstakra verkefna. Samskonar mælaborð er á vefnum fyrir framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skirfstofa jafnréttis- og mannréttindamála
for@for.is