Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 4.–11.3.2024

2

Í vinnslu

  • 12.3.2024–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-68/2024

Birt: 4.3.2024

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða

Málsefni

Þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu varða annars vegar lög um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, og lög um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023.

Nánari upplýsingar

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um virðisaukaskatt að því er varðar sölu á þjónustu til aðila, atvinnufyrirtækja sem og annarra, sem eiga hvorki heimilisfesti hér á landi, lögheimili né stunda hér atvinnustarfsemi frá fastri starfsstöð. Í öðru lagi er lagt til að bætt verði við ákvæði til bráðabirgða XLVIII í lögum um virðisaukaskatt þar sem kveðið verður á um upplýsingagjöf til ríkiskattsstjóra. Í þriðja lagi eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um kílómetragjald er varðar skráningu á stöðu akstursmælis, fyrirframgreiðslu kílómetragjalds o.fl.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa skattamála

fjr@fjr.is