Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 23.2.–7.3.2024

2

Í vinnslu

  • 8.3.2024–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-54/2024

Birt: 23.2.2024

Fjöldi umsagna: 19

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Landbúnaður

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um velferð dýra nr. 55/2013 o.fl. (eftirlit)

Málsefni

Meginmarkmið frumvarpsins er að stuðla að bættu eftirliti með velferð dýra og tryggja skilvirkni málaflokksins.

Nánari upplýsingar

Í nóvember 2023 birti Ríkisendurskoðun skýrslu til Alþingis vegna stjórnsýsluúttektar stofnunarinnar á eftirliti Matvælastofnunar með velferð búfjár. Í skýrslunni er ítarleg umfjöllun um umfang og framkvæmd eftirlits og var tilgangur úttektarinnar að kanna hvort eftirlitið væri skilvirkt og árangursríkt og hvort það væri í samræmi við lög og reglugerðir um velferð dýra. Í skýrslunni koma fram ábendingar ríkisendurskoðanda í 13. liðum er snúa annars vegar að Matvælastofnun og hins vegar matvælaráðuneytinu.

Það frumvarp sem hér er lagt fram er viðbragð ráðuneytisins við ábendingum sem komu fram í framangreindri skýrslu. Þá eru lagðar til breytingar samkvæmt tillögum Matvælastofnunar með það að markmiði að stuðla að bættu eftirliti stofnunarinnar.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (14)

Umsjónaraðili

Skrifstofa landbúnaðar.

mar@mar.is