Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 23.2.–8.3.2024

2

Í vinnslu

  • 9.3.–7.8.2024

3

Samráði lokið

  • 8.8.2024

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-53/2024

Birt: 23.2.2024

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Framhaldsskólastig

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um námsstyrk, nr. 79/2003 (nemendur með alþjóðlega vernd)

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 27. mars 2024, sjá þingskjal 1381 - 934. mál, sbr. hlekk hér fyrir neðan.

Málsefni

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til breytingar á lögum um námsstyrki, nr. 79/2003 (nemendur með alþjóðlega vernd)

Nánari upplýsingar

Í frumvarpinu er lagt til að gerðar verði afmarkaðar breytingar á lögum um námsstyrki, nr. 79/2003, þannig að skilyrði fyrir styrkveitingu verði rýmkuð þannig að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða geti öðlast rétt til námsstyrks, uppfylli þeir skilyrði laganna að öðru leyti. Jafnframt er lögð til minni háttar orðalagsbreyting sem endurspeglar breytingar sem urðu á lagaumhverfi námslána við setningu laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (5)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa ráðuneytisstjóra og innri þjónustu

mrn@mrn.is