Til umsagnar
22.2.–7.3.2024
Í vinnslu
8.3.2024–
Samráði lokið
Mál nr. S-52/2024
Birt: 22.2.2024
Fjöldi umsagna: 4
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Til stendur að skilgreina ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra á högun upplýsingatækni ríkisins.
Með frumvarpinu er skilgreind ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytisins á stefnumótun og fyrirkomulagi upplýsingatæknimála ríkisins sem og ábyrgð og hlutverk ráðuneyta og stofnana í því fyrirkomulagi. Þar verður jafnframt kveðið á um heimild ráðuneytisins til að setja reglur eða gefa fyrirmæli um grundvallarviðmið í högum upplýsingatækni og gagna. Ætlunin er ekki að færa ábyrgð á rekstri upplýsingatæknikerfanna sjálfra frá ríkisaðilunum, heldur fyrst og fremst að styðja við þær þannig að þær séu betur í stakk búnar til að sinna lögbundnum verkefnum.
Markmiðið er að tryggja samræmda, hagkvæma, örugga og vandaða högun upplýsingatækni ríkisins ásamt því að auka skilvirkni og gagnsæi við veitingu opinberrar þjónustu. Fyrirmæli um grundvallarviðmið eru þannig til þess fallin að koma á samræmdara fyrirkomulagi. Sama á við um stafrænar kjarnaþjónustur, sem ráðherra mun bera ábyrgð á.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stjórnunar og umbóta