Til umsagnar
22.2.–7.3.2024
Í vinnslu
8.–16.3.2024
Samráði lokið
17.3.2024
Mál nr. S-51/2024
Birt: 22.2.2024
Fjöldi umsagna: 22
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Ábendingar og tillögur varðandi framkvæmd söluferlisins gáfu sumar tilefni til breytinga á frumvarpsdrögunum, en að einhverjum þeirra verður hugað í framkvæmd. Umsagnir sem ekki varða framkvæmd kalla á áréttingu nokkurra atriða í meðfylgjandi niðurstöðuskjali.
Drögin fela í sér að ríkið ráðstafi eignarhlut sínum í Íslandsbanka með markaðssettu útboði.
Samkvæmt drögunum er ráðherra heimilað, að fenginni heimild Alþingis í fjárlögum, að ráðstafa þeim eignarhlut sem ríkissjóður á í Íslandsbanka.
Frumvarpsdrögin gera ráð fyrir ráðstöfun eignarhlutar með markaðssettu útboði, einu eða fleirum. Þannig gefst almenningi kostur á að taka þátt og kveða drögin á um að sala til einstaklinga hafi forgang. Með sölu eignarhlutarins er unnt að lækka skuldir og vaxtabyrði ríkissjóðs sem ella þarf að fjármagna rekstur sinn með öðrum og kostnaðarsömum hætti.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Engin skráður umsjónaraðili.