Til umsagnar
21.2.–6.3.2024
Í vinnslu
7.–10.3.2024
Samráði lokið
11.3.2024
Mál nr. S-50/2024
Birt: 21.2.2024
Fjöldi umsagna: 5
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Áform um frumvarp til breytinga á lögum um opinber innkaup var birt í samráðsgátt og var tveggja vikna frestur veittur til að skila umsögnum. Í heildina bárust fimm umsagnir sem voru frá Samtökum iðnaðarins, Viðskiptaráði, Reykjavíkurborg, Consensa og einum einstaklingi. Umsagnirnar voru almennt jákvæðar gagnvart þeim breytingum sem lýst var í áformaskjali og þeim markmiðum sem þeim væri ætlað. Gengið verður frá frumvarpi vegna þeirra breytinga sem þörf er að gera á tilteknum ákvæðum í núgildandi lögum um opinber innkaup og leitast verður við að taka mið af þeim umsögnum sem bárust.
Áformað er að ráðast í afmarkaðar breytingar á lögum um opinber innkaup.
Um er ræða afmarkaða endurskoðun á tilteknum ákvæðum sem gilda á sviði opinberra innkaupa. Ekki er stefnt að verulegum breytingum á núverandi skyldum og kvöðum sem gilda um opinbera aðila samkvæmt núverandi ramma. Fyrst og fremst er um að ræða endurskoðun á tilteknum ákvæðum til að tryggja samræmda túlkun við EES-rétt og til að þau nái tilætluðum markmiðum. Þá er einnig talin þörf á að endurskoða stofnanaumgjörðina um Ríkiskaup sem er í gildandi lögum.
Umsagnir voru birtar að loknum umsagnarfresti. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stjórnunar og umbóta