Til umsagnar
20.–28.2.2024
Í vinnslu
29.2.–20.3.2024
Samráði lokið
21.3.2024
Mál nr. S-48/2024
Birt: 20.2.2024
Fjöldi umsagna: 4
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Alls bárust fjórar umsagnir. Verða þær teknar til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps eftir því sem við á.
Að skýra betur tiltekin ákvæði í lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, og lögum um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, nr. 101/2023.
Í skattframkvæmd hafa komið upp ýmis álitamál varðandi gildissvið 10. tölul. 12. gr. laga um virðisaukaskatt nr. 50/1988 sem ástæða er til að bregðast við. Nauðsynlegt þykir að skýra betur efni ákvæðisins þegar þjónusta er seld til atvinnufyrirtækja, sem hvorki hafa heimilisfesti hér á landi né stunda hér atvinnustarfsemi frá fastri starfsstöð, þannig að ákvæðið samræmist betur meginstefi fjarlægðarreglunnar (e. destination principle) og leiði til aukins skýrleika og skilvirkni í skattframkvæmd.
Frumvarp um kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða var samþykkt á Alþingi í desember sl. og varð að lögum nr. 101/2023. Lögin tóku gildi 1. janúar sl. Í ljós hefur komið að þörf er á að skýra betur tiltekin ákvæði í lögunum, t.a.m. þau ákvæði er varða leiðréttingarheimildir og bifreiðar sem skráðar eru erlendis. Einnig mun vera tekið til skoðunar hvort rétt sé að styrkja enn frekar viðurlagaákvæði laganna.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa skattamála
fjr@fjr.is