Til umsagnar
13.–27.2.2024
Í vinnslu
28.2.–31.10.2024
Samráði lokið
1.11.2024
Mál nr. S-42/2024
Birt: 13.2.2024
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Engar umsagnir bárust. Lög um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna nr. 55/2024, voru gefin út 20. júní 2024.
Meginreglan um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna innan EES er staðfest og skorður settar við kröfur í lögum eða reglugerðum um að gögn skuli staðsett á tilteknu svæði eða í tilteknu ríki.
Með frumvarpinu eru uppfylltar skyldur íslenska ríkisins til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2018/1807 (hér eftir reglugerðin). Markmið reglugerðarinnar er að staðfesta meginregluna um frjálst flæði gagna innan EES. Frjálst flæði persónuupplýsinga var tryggt með reglugerð (ESB) 2016/679, sem innleidd var með lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, en sambærilegar reglur hafa hingað til ekki gilt um ópersónulegar upplýsingar.
1. Reglugerðin setur fram þá meginreglu að kröfur í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum um að vinnsla gagna sé takmörkuð við tiltekið svæði innan EES séu óheimilar, nema slíkar kröfur séu rökstuddar á grundvelli almannaöryggis og í samræmi við meðalhófsreglu. Meginreglan er með fyrirvara um þær kröfur um staðsetningu gagna sem þegar mælt er fyrir um á grundvelli gildandi EES-löggjafar sem og annarra undanþága sem fram koma í reglugerðinn
2. Fella skal úr gildi kröfur um staðsetningu gagna, sem ekki eiga við rök að styðjast eða tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA um þær kröfur sem stjórnvöld telja eigi við rök að styðjast.
3. Stjórnvöld skulu upplýsa Eftirlitsstofnun EFTA um hugsanlega nýja kröfu um staðsetningu gagna sem sett er með lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum, hafa aðgengilegt yfirlit yfir þær kröfur um staðsetningu gagna sem eru í gildi í lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum og tilnefna einn tengilið til að hafa samskipti og samstarf við mótaðila í öðrum EES-ríkjum.
4. Lögbær yfirvöld í EES-ríkjum geta óskað eftir aðgangi að gögnum sem eru staðsett í öðru EES-ríki, eða geymd eða unnin í skýinu, og krafist er vegna opinberra starfa þeirra.
5. Framkvæmdastjórn ESB skal hvetja til og greiða fyrir þróun hátternisreglna til þess að stuðla að samkeppnishæfu gagnakerfi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðasamskipta
hvin@hvin.is