Til umsagnar
9.–25.2.2024
Í vinnslu
26.2.–26.6.2024
Samráði lokið
27.6.2024
Mál nr. S-37/2024
Birt: 9.2.2024
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Engar umsagnir bárust. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 27. mars 2024, sjá þingmál nr. 903, sbr. hlekk hér fyrir neðan.
Lagðar til breytingar á lögum til þess að bregðast við áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka.
Með frumvarpinu er brugðist við áhættumati Ríkislögreglustjóra sem bendir á að regluverk sem gildir um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög og sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá hér á landi, skapi verulega áhættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Ísland er skuldbundið til þess að samræma löggjöf sína tilmælum alþjóðlega fjármálaaðgerðarhópsins Financial Action Task Force (FATF). Komið hefur í ljós í áhættumötum Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka að regluverk sem gildir um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög og sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá hér á landi skapi verulega áhættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Helstu veikleikar í tengslum við trú- og lífsskoðunarfélög séu í umgjörð, löggjöf og eftirliti með skráðum félögum. Lúti þeir veikleikar einkum að ófullnægjandi ákvæðum um hæfi fyrirsvarsmanna þessara félaga, bókhaldi þeirra og fjárreiðum. Helstu veikleikar í tengslum við sjóði og stofnanir eru að lögin eru komin til ára sinna og talið að þau þurfi að endurskoða í heild sinni með hliðsjón af því að alltof margir sjóðir og stofnanir skili ekki ársreikningi. Engin viðurlög eru við því að skila ekki ársreikningi og þau úrræði sem mælt er fyrir um í lögunum eru fá og virðast ekki nýtast sem skyldi. Þá eru engin skilyrði í lögunum um hæfi þeirra sem stjórna slíkum sjóðum og stofnunum. Frumvarpinu er ætlað að bregðast við þessum helstu veikleikum í framangreindri löggjöf.
Í I. kafla frumvarpsins eru breytingar á lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Lagt er til að inn í lögin komi ákvæði varðandi færslu bókhalds og gerð ársreiknings. Einnig er lagt til að félögin skuli skila ársreikningi til sýslumanns en sýslumaður fer með eftirlit með skráðum trúfélögum og lífsskoðunarfélögum. Jafnframt er lagt til að sýslumaður skuli leggja á stjórnvaldssektir á þau félög sem skila ekki ársreikning innan tilskilins frests. Þá eru lagðar til breytingar sem kveða á um ríkari hæfisskilyrði forstöðumanna trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Jafnframt er lagt til ákvæði sem kveður á um hæfisskilyrði stjórnarmanna trúfélaga og lífsskoðunarfélaga. Þá er lagt til ákvæði um viðurlög við brotum á lögunum.
Í II. kafla frumvarpsins eru breytingar á lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Lagt er til að inn í lögin komi ákvæði varðandi hæfi þeirra sem standa að sjóðum og stofnunum. Þá er lagt til að inn í lögin komi ákvæði um bókhald og ársreikninga. Lagt er til að sýslumaður taki við verkefnum Ríkisendurskoðanda samkvæmt lögunum og sjóðum og stofnunum beri að skila ársreikning til sýslumanns. Jafnframt er lagt til að sýslumaður skuli leggja stjórnvaldssektir á sjóði og stofnanir skili þau ekki ársreikningi innan tilskilins frests. Jafnframt er lagt til að sýslumanni verði heimilt að leggja niður sjóði og stofnanir hafi þau ekki skilað ársreikningi í tvö ár. Þá er lagt til ákvæði um viðurlög við brotum á lögunum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa réttinda einstaklinga
dmr@dmr.is