Til umsagnar
8.–23.2.2024
Í vinnslu
24.2.–7.7.2024
Samráði lokið
8.7.2024
Mál nr. S-35/2024
Birt: 8.2.2024
Fjöldi umsagna: 3
Drög að frumvarpi til laga
Heilbrigðisráðuneytið
Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
Frumvarpið var lagt fram á síðasta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Verður endurflutt á nýju þingi.
Lagðar eru til ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar, svo sem um vinnsluheimildir Sjúkratrygginga og að stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins.
Meginefni frumvarpsins lýtur að eftirfarandi þáttum:
• Skýra betur skyldu sjúkratryggingastofnunar um að byggja ákvörðunartöku og
stefnumótum á gagnreyndri meðferð og faglegu og hagrænu mati.
• Stytta biðtíma eftir sjúkratryggingu eftir flutning til landsins.
• Veita sjúkratryggingastofnuninni skýrari heimildir til að taka ákvörðun um hvort
einstaklingur sé sjúkratryggður hér á landi á grundvelli búsetu.
• Festa í lög greiðsluþátttöku vegna biðtíma.
• Breytingar á greiðslum sjúkrahúsa vegna sjúkraflutnings án innlagnar.
• Skýrari ákvæði um skráningu upplýsinga í miðlægan lyfjagreiðslugrunn og
miðlægan heilbrigðisþjónustugrunn og innleiða öryggisráðstafanir til að tryggja
vernd persónuupplýsinga og upplýsingaöryggi hjá sjúkratryggingastofnuninni og
viðsemjendum stofnunarinnar.
• Greiðsluþátttaka vegna veikinda og slysa utan Evrópska efnahagssvæðisins
takmörkuð við námsmenn.
• Hugtakanotkun breytt, t.a.m. er hugtakinu „bætur“ breytt í „réttindagreiðslur“.
• Ítarlegri skilgreiningar á tilgangi gagnaúrvinnslu og vinnsluheimildum
sjúkratryggingastofnunarinnar.
• Ákvæði um einstaklingsbundna greiðsluþátttöku vegna lyfja (lyfjaskírteini)
uppfærð í samræmi við framkvæmd sem var innleidd með greiðsluþátttökukerfi
lyfja.
• Lögfesta framkvæmd um útreikning og greiðslur til heilsugæslna á grundvelli
fjármögnunarlíkana.
• Ákvæði um að gögn í tengslum við samningaviðræður verði ekki afhent fyrr en
að viðræðum loknum.
Að öðru leyti vísast til umfjöllunar í drögum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
hrn@hrn.is