Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 7.–21.2.2024

2

Í vinnslu

  • 22.2.–1.7.2024

3

Samráði lokið

  • 2.7.2024

Mál nr. S-29/2024

Birt: 7.2.2024

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Samþykkt á endurskoðun kvóta Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Niðurstöður

Engar athugasemdir bárust í opnu samráði og næstu skref eru að hefja frumvarpsgerð. Horft er til þess að veita Seðlabankanum heimild í lögum um stofnunina til þess að samþykkja og greiða kvótaaukningar hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að veittu samþykki fjármála- og efnahagsráðherra hverju sinni.

Málsefni

Áformað er að gefa ríkisstjórninni heimild til þess að samþykkja síðustu kvótaaukningu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Seðlabanka Íslands leyfi til að greiða AGS þá upphæð sem nemur kvótaaukningunni.

Nánari upplýsingar

Stjórn og sjóðsráð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa samþykkt niðurstöður reglubundinnar endurskoðunar á kvóta sjóðsins. Kvótinn ákvarðar útlánagetu sjóðsins og skipting kvótans atkvæðavægi ríkja í málefnum sjóðsins.

Niðurstaða endurskoðunarinnar að þessu sinni felur í sér að kvóti allra aðildarríkja eykst um 50%. Samhliða aukningunni verður dregið úr tvíhliða lánum aðildarríkja til sjóðsins. Útlánageta sjóðsins verður því óbreytt en fjármögnunin mun í auknum mæli endurspegla atkvæðavægi aðildarríkjanna.

Öll aðildarríki sjóðsins utan Brasilíu og Rússlands studdu niðurstöður endurskoðunarinnar í stjórn sjóðsins. Mörg nýmarkaðs- og þróunarríki, þ.m.t. Kína, höfðu þó vonast eftir breytingum á því hvernig kvótanum er deilt milli aðildarríkjanna með auknu vægi þeirra. Þessi niðurstaða þjónar hagsmunum Íslands vel enda helst atkvæðavægið óbreytt miðað við aðrar sviðsmyndir sem voru til skoðunar. Hefðu helstu hugmyndir um breytta dreifingu kvótans og þar með atkvæðavægisins náð fram að ganga hefði hlutdeild Íslands líklega minnkað. Í umræðum um þær breytingar hefur Íslands, líkt og Norður- og Eystrasaltslönd, lagt áherslu á að tekið verði tillit til hlutdeildar ríkja í alþjóðaviðskiptum.

Seðlabankinn, sem fer með atkvæði Íslands fyrir hönd ríkissjóðs, hefur greitt atkvæði með niðurstöðunni í sjóðsráði eftir samráð við fjármála- og efnahagsráðuneytið. Fjármála- og efnahagsráðherra hyggst leggja fram á vorþingi frumvarp sem heimilar ríkisstjórninni að taka ákvörðun um kvótahækkun og heimilar Seðlabankanum að uppfylla þá fjárhagslegu skuldbindingu sem felst í niðurstöðum kvótaaukningarinnar. Eftir samþykkt laganna mun skuldbinding Íslands aukast um 160,9 m. SDR (rúmlega 29 ma.kr. m.v. gengi lok árs 2023). Þar af greiðir Seðlabankinn 40,2 m. SDR (rúmlega 7 ma.kr. m.v. gengi lok árs 2023) í erlendri mynt til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en sú fjárhæð mun teljast sem gjaldeyrisinnstæða Seðlabankans, auk þess sem 120,7 m. SDR (rúmlega 22 ma.kr. m.v. gengi lok árs 2023) verða færðir sem krónuinnstæða sjóðsins í Seðlabankanum. Núverandi lagaumhverfi leyfir ríkisstjórninni ekki að samþykkja kvótahækkunina og þar af leiðandi hefur Seðlabanki Íslands (að óbreyttu) ekki heimild til þess að leggja til fjármagn til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna hækkunar kvótans.

Til þess að ríkisstjórnin geti samþykkt kvótahækkunina, sem hefur í för með sér fjárhagslegar skuldbindingar fyrir íslenska ríkið, og til þess að Seðlabanki Íslands geti greitt fyrir hækkunina fyrir hönd ríkisins þarf heimild í lögum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa efnahagsmála

haraldurs@fjr.is