Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.1.–13.2.2024

2

Í vinnslu

  • 14.2.2024–

Samráði lokið

Fylgiskjöl

Mál nr. S-22/2024

Birt: 31.1.2024

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Samruni Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar og Háskólans á Akureyri

Málsefni

Áformin lúta að stofnun rannsóknarstofu í Háskólanum á Akureyri, sem verði vettvangur rannsókna á norðurslóðum með áherslu á þverfagleg mannvísindi og starfi í alþjóðlegu vísindaumhverfi.

Nánari upplýsingar

Um er að ræða hluta af áformuðum breytingum á stofnanakerfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins þar sem m.a. er leitast við að einfalda það til muna, efla þekkingar- og lærdómssamfélag og nýta betur þekkingu, innviði og gögn. Áform þessi lúta að því að Stofnun Vilhjálms Stefánssonar verði hluti af Háskólanum á Akureyri. Hjá stofnuninni starfa um 10 sérfræðingar í um 6 stöðugildum.

Í stefnu stjórnvalda í málefnum norðurslóða er lögð áhersla á uppbyggingu miðstöðvar norðurslóða á Akureyri. Þar fer fram ýmis starfsemi sem tengist rannsóknum, vöktun og miðlun þekkingar um norðurslóðir og má þar m.a. nefna Norðurslóðanet Íslands, sem er samstarfsvettvangur innlendra aðila sem fjalla um norðurslóðir, og tvær skrifstofur vinnuhópa Norðurskautsráðsins, The Conservation of Arctic Fauna (CAFF) og Protection of the Marine Environment (PAME). Einnig skrifstofu Norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC), sem hefur skipað sér sess sem einn mikilvægasti alþjóðlegi samstarfsvettvangurinn um rannsóknir og vöktun á norðurslóðum. Þessar skrifstofur eru staðsettar ásamt Stofnun Vilhjálms Stefánssonar í Borgum, rannsókna- og nýsköpunarhúsi Háskólans á Akureyri. Með samruna háskólans og Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar gefst tækifæri til að skoða og endurmeta samstarfsmöguleika við aðra norðurslóðaaðila á Akureyri, einkum Norðurslóðanetið.

Stefnt er að því að hin nýja rannsóknastofnun verði vettvangur rannsókna á norðurslóðum með áherslu á þverfagleg mannvísindi og starfi í alþjóðlegu vísindaumhverfi. Til að samruni þessi geti átt sér stað þarf að leggja niður Stofnun Vilhjálms Stefánssonar sem kallar á brottfall laga um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnunefnd um málefni norðurslóða, nr. 81/1997.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa yfirstjórnar

urn@urn.is