Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 1.–20.2.2024

2

Í vinnslu

  • 21.2.–24.7.2024

3

Samráði lokið

  • 25.7.2024

Mál nr. S-14/2024

Birt: 1.2.2024

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegur og fiskeldi

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax og silungsveiði og lögum um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna (framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits)

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust um frumvarpið. Engar efnislegar breytingar voru gerðar á því en breytingar á greinargerð. Markmiðið er að hverfa frá því að hafa í lögum ákvæði um sérstök menntunarskilyrði forstjóra Hafrannsóknastofnunar en gert ráð fyrir að hann verði að uppfylla almenn hæfisskilyrði laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, til að fá skipun í starf á vegum ríkisins. Í auglýsingu um embættið verða skilgreindar hæfiskröfur forstjóra með hliðsjón af stjórnendastefnu ríkisins og þekkingu og reynslu á verksviði stofnunarinnar. Frumvarpið var ekki lagt fyrir Alþingi.

Málsefni

Lagt er til að breytt verði 1. mgr. 4. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði og 3. gr. laga nr. 112/2015, um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði eftirfarandi lagabreytingar: Í fyrsta lagi er lagt til að breytt verði ákvæði í 1. mgr. 4. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, á þann veg að ekki verði lengur lögbundið að framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits samkvæmt lögunum og öðrum lögum á sviði ferskvatnsmála skuli vera á sérstöku sviði sem nefnist lax- og silungsveiðisvið. Einnig að fella brott ákvæði um að fiskistofustjóri ráði sviðsstjóra til að stýra því sviði, að hann skuli hafa háskólapróf sem nýtist honum í starfi og heyra undir fiskistofustjóra. Þess í stað verði lögfest ákvæði í 1. mgr. 4. gr. laganna um að framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits verði hjá Fiskistofu. Einnig verður gert ráð fyrir að fiskistofustjóri sem stýrir stofnuninni, sbr. 3. gr. laga nr. 36/1992, um Fiskistofu, ákveði hvaða svið skuli vera hjá stofnuninni og hvernig þeim skuli stýrt, hver skuli vera heiti stjórnenda þeirra og hvaða verkefni þau fara með. Þannig mun fiskistofustjóri ákveða undir hvaða svið stofnunarinnar stjórnsýsla og framkvæmd eftirlits á sviði ferskvatnsmála skuli falla. Í öðru lagi er lagt til að breyta ákvæði 3. gr. laganna á þann veg að fella brott ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. um að forstjóri Hafrannsóknastofnunar skuli hafa háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar. Ekki þykir ástæða til að lögbinda að forstjóri skuli hafa háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar heldur þykir rétt að hafa ákvæðið á þann veg að einnig sé heimilt að skipa forstjóra með aðra menntun sem nýtist í starfi.

Heiti málsins hefur verið breytt eftir að áformaskjöl voru birt í máli nr. 262/2023.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (6)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa sjávarútvegs

mar@mar.is