Til umsagnar
25.1.–8.2.2024
Í vinnslu
9.2.2024–
Samráði lokið
Mál nr. S-13/2024
Birt: 25.1.2024
Fjöldi umsagna: 8
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Orkumál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á raforkulögum til að stuðla að auknu raforkuöryggi.
Raforkuöryggi og tryggt framboð raforku eru grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands.
Á vegum umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytis stendur yfir vinna um nákvæma útfærslu á tilteknum úrræðum frá starfshópunum og viðbótarúrræðum í óformlegum samstarfshópi með víðtæka þátttöku aðila á markaði ásamt eftirlitsaðila og flutningsfyrirtækinu.
Ráðgert er að útfæra með lagasetningu nánar skyldur aðila á raforkumarkaði, þ.e. vinnsluaðila, flutningsfyrirtækisins og söluaðila. Einnig eru til skoðunar heimildir stórnotenda til að selja ónotaða orku inn á heildsölumarkað.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar
postur@urn.is