Til umsagnar
9.–23.1.2024
Í vinnslu
24.1.2024–24.3.2025
Samráði lokið
25.3.2025
Mál nr. S-5/2024
Birt: 9.1.2024
Fjöldi umsagna: 2
Drög að frumvarpi til laga
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Umsagnir sem bárust snúa að mikilvægi þess að tryggja skýrleika varðandi hvaða plastvörur munu falla undir fyrirhugaða löggjöf og að fulls samræmis verði gætt á milli gildissviðs ákvæðisins á Íslandi og í öðrum ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, s.s. með því að skýra betur mörk milli annars vegar íláta undir vökva og hins vegar íláta undir önnur matvæli. Í ljósi þessara ábendinga var frekari skýringum bætt við greinargerð með frumvarpinu og m.a. leitað samráðs við stjórnvöld í nágrannaríkjum varðandi gildissvið. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í febrúar 2025.
Með frumvarpinu er ætlunin að lögfesta skilyrði um áfasta tappa og lok á einnota drykkjarílátum og –umbúðum úr plasti sem sett eru á markað hér á landi frá og með 3. júlí 2024.
Markmiðið með frumvarpinu er að draga úr magni plasts sem losnar út í umhverfið og áhrifum af notkun plasts á umhverfið og heilsu fólks. Tilefni lagasetningarinnar er innleiðing ákvæðis 1. mgr. 6. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 frá 5. júní 2019 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið. Ákvæðið mælir fyrir um gerð og samsetningu tiltekinna einnota plastvara að því leyti að einungis megi setja einnota drykkjarílát og –umbúðir úr plasti með tappa eða lok úr plasti á markað ef tappinn eða lokið er áfast vörunni á meðan fyrirhuguð notkun hennar stendur yfir. Tilgangurinn með ákvæðinu er að koma í veg fyrir að tappar og lok af einnota drykkjarílátum og –umbúðum endi á víðavangi og úti í umhverfinu.
Í frumvarpinu er lagt til að við 37. gr. g laga um hollustuhætti og mengunarvarnir bætist ný málsgrein sem kveður á um að tilteknar einnota plastvörur sem eru með tappa eða lok úr plasti verði einungis heimilt að setja á markað hér á landi ef tapparnir og lokin eru áfram föst við viðkomandi vörur á meðan fyrirhuguð notkun á þeim stendur yfir. Breytingin mun leiða til þess að tappar og lok á algengum neysluvörum á íslenskum markaði þurfa að vera áföst vörunum á meðan á eðlilegri notkun þeirra stendur. Þetta á að koma í veg fyrir að lausir tappar og lok verði viðskila við vörurnar og geti endað úti í umhverfinu. Breytingin verður jafnframt til þess að kröfur um áfasta tappa og lok verða þær sömu hér á landi og í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu. Lagt er til að breytingin öðlist gildi 3. júlí 2024, eða á sama tíma og í öðrum ríkjum samkvæmt áðurnefndri tilskipun.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar
urn@urn.is