Til umsagnar
8.–21.1.2024
Í vinnslu
22.1.–21.11.2024
Samráði lokið
22.11.2024
Mál nr. S-4/2024
Birt: 8.1.2024
Fjöldi umsagna: 1
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Ein umsögn barst í samráðsgátt. Frumvarpið tók breytingum (varðandi forstöðu stofnunarinnar) og varð að hluta til að lögum nr. 82/2024, en ákvæði um stafrænt aðgengi upplýsinga var fellt út.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á 4. gr., 6. gr., 8. gr. og 11. gr. laga um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998.
Markmið frumvarpsins er að veita Verðlagsstofu skiptaverðs skýrari heimildir til rafræns og stafræns aðgangs að gagnasöfnum Skattsins og Hagstofu Íslands er varðar fiskverð og afurðaverð. Þannig geti Verðlagsstofa betur stuðlað að markmiðum eftirlits sem stofunni er fengið, innleitt áhættumiðað samtímaeftirlit, aukið gagnsæi og stuðlað að styttri málsmeðferðartíma fyrir úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. Frumvarpið mælir ekki fyrir um nýjar skyldur á hendur einstaklingum og fyrirtækjum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sjávarútvegs
mar@mar.is