Til umsagnar
21.12.2023–11.1.2024
Í vinnslu
12.1.–7.8.2024
Samráði lokið
8.8.2024
Mál nr. S-263/2023
Birt: 21.12.2023
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Leikskólar, grunnskólar, önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála
Engar umsagnir bárust. Gert er ráð fyrir að drög að frumvarpi um þetta efni verði birt í Samráðsgátt í byrjun árs 2024.
Áformað er að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um námsstyrki, til að gera nemendum sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða kleift að sækja um styrk.
Á síðastliðnum árum hefur fjölda einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða fjölgað umtalsvert á Íslandi. Með hliðsjón af þeirri þróun hafa stjórnvöld leitast við að tryggja farsæla móttöku þessa hóps, t.d. með því að fjölga þeim sveitarfélögum sem taka þátt í svonefndri samræmdri móttöku. Í ljósi þess að sum þessara sveitarfélaga eru staðsett á landsbyggðinni er ljóst að börn, sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, munu í auknum mæli setjast að og stunda nám þar sem fjarlægðir á milli lögheimilis, fjölskyldu og skóla geta verið umtalsverðar.
Framangreindir nemendur eiga þó ekki, ólíkt öðrum nemendum í sambærilegri stöðu, rétt á námsstyrk samkvæmt lögum um námsstyrki nr. 79/2003, enda er það skilyrði í núgildandi 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laganna að viðkomandi sé íslenskur ríkisborgari eða ríkisborgari erlends ríkis sem íslenska ríkið hefur gert samning við. Ljóst er að í þeim tilfellum þar sem t.d. er um að ræða nemendur sem teljast ríkisfangslausir og hafa fengið vernd á þeim grundvelli yrði umrætt skilyrði ekki uppfyllt. Með hinu áformaða frumvarpi er því stefnt að því að gera tilteknar breytingar á 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laganna, svo umræddir nemendur geti átt rétt til námsstyrkja og þar með sé jafnræðis gætt á milli umsækjenda um styrk.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa ráðneytisstjóra og innri þjónustu
mrn@mrn.is