Til umsagnar
22.12.2023–15.1.2024
Í vinnslu
16.–25.1.2024
Samráði lokið
26.1.2024
Mál nr. S-262/2023
Birt: 22.12.2023
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Umsagnir bárust frá einum aðila, Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna þar sem komu fram ábendingar um tiltekin formsatriði til að leiðrétta í mati á áhrifum lagasetningar. Engar efnislegar athugasemdir voru gerðar við áformaskjölin. Ráðuneytið gerði leiðréttingar á skjalinu Mat á áhrifum lagasetningar í samræmi við ábendingar Hafrannsóknastofnunar við vinnslu og frágang endanlegs mats á áhrifum frumvarpsins. Drög að frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lögum um opinberar stofnanir (framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits) verða birt á samráðsgátt.
Lagt er til að breytt verði 1. mgr. 4. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði og 3. gr. laga nr. 112/2015, um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna.
Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði eftirfarandi lagabreytingar: Í fyrsta lagi er lagt til að breytt verði ákvæði í 1. mgr. 4. gr. laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði, á þann veg að ekki verði lengur lögbundið að framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits samkvæmt lögunum og öðrum lögum á sviði ferskvatnsmála skuli vera á sérstöku sviði sem nefnist lax- og silungsveiðisvið. Einnig að fella brott ákvæði um að fiskistofustjóri ráði sviðsstjóra til að stýra því sviði, að hann skuli hafa háskólapróf sem nýtist honum í starfi og heyra undir fiskistofustjóra. Þess í stað verði lögfest ákvæði í 1. mgr. 4. gr. laganna um að framkvæmd stjórnsýslu og eftirlits verði hjá Fiskistofu. Einnig verður gert ráð fyrir að fiskistofustjóri sem stýrir stofnuninni, sbr. 3. gr. laga nr. 36/1992, um Fiskistofu, ákveði hvaða svið skuli vera hjá stofnuninni og hvernig þeim skuli stýrt, hver skuli vera heiti stjórnenda þeirra og hvaða verkefni þau fara með. Þannig mun fiskistofustjóri ákveða undir hvaða svið stofnunarinnar stjórnsýsla og framkvæmd eftirlits á sviði ferskvatnsmála skuli falla. Í öðru lagi er lagt til að breyta ákvæði 3. gr. laganna á þann veg að fella brott ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. um að forstjóri Hafrannsóknastofnunar skuli hafa háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar. Ekki þykir ástæða til að lögbinda að forstjóri skuli hafa háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar heldur þykir rétt að hafa ákvæðið á þann veg að einnig sé heimilt að skipa forstjóra með aðra menntun sem nýtist í starfi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sjávarútvegs
mar@mar.is