Til umsagnar
12.12.2023–3.1.2024
Í vinnslu
4.1.–7.2.2024
Samráði lokið
8.2.2024
Mál nr. S-260/2023
Birt: 12.12.2023
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Heilbrigðisráðuneytið
Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
Engar athugasemdir bárust.
Áformað er að breyta lögum um sjúkratryggingar einkum með það að markmiði að skýra heimildir stofnunarinnar til að vinna nauðsynlegar upplýsingar.
Áformin varða ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar sem fyrirhugaðar eru og varða m.a. styttingu á biðtíma eftir sjúkratryggingu, endurskoðun á greiðsluþátttöku vegna veikinda og slysa utan EES auk ákvæða þar sem lögfestar eru með skýrum hætti heimildir Sjúkratrygginga til að afla upplýsinga sem eru stofnuninni nauðsynlegar, svo sem vegna ákvarðana um réttindi samkvæmt lögunum. Er einnig stefnt að því að skilgreina nánar réttindi sjúkratryggðra og breyta ákvæðum um miðlægan heilbrigðisþjónustugrunn og lyfjagagnagrunn m.t.t. þess hvaða upplýsingar ber að skrá í grunnana. Þá eru áformaðar ýmsar breytingar á ákvæðum sem lýsa ekki lengur gildandi framkvæmd hjá stofnuninni.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa innviða heilbrigðisþjónustu
hrn@hrn.is