Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 11.–27.12.2023

2

Í vinnslu

  • 28.12.2023–25.8.2024

3

Samráði lokið

  • 26.8.2024

Mál nr. S-257/2023

Birt: 11.12.2023

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Áform um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust

Málsefni

Áformuð er lagasetning um frumvarp til laga um greiðslur yfir landamæri í evrum.

Nánari upplýsingar

Áformað er að leggja fram frumvarp í þeim tilgangi að annars vegar innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar (ESB) 2021/12301 um greiðslur yfir landamæri í Evrópusambandinu (kerfisbinding) og hins vegar tryggja áframhaldandi lagastoð fyrir reglugerð (ESB) nr. 260/20122 um að koma á tæknilegum og viðskiptalegum kröfum fyrir millifærslur fjármuna og beingreiðslur í evrum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/20093.

Með reglugerð (ESB) 2021/1230 um greiðslur yfir landamæri í Evrópusambandinu (kerfisbinding) eru sameinuð með kerfisbindingu (e. codification) ákvæði reglugerðar (EB) nr. 924/2009 um greiðslur yfir landamæri í ESB, tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 og ákvæði reglugerðar (ESB) 2019/5184 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009. Með kerfisbindingunni er ætlunin að draga saman á einn stað breytingar á regluverkinu til einföldunar, skýringarauka og bætts aðgengis almennings. Reglugerð (ESB) 2019/518 hafði ekki verið tekin upp í EES-samninginn þegar ákveðið var að endurútgefa reglugerð (ESB) með kerfisbindingu.

Reglugerð (ESB) nr. 260/2012 um að koma á tæknilegum og viðskiptalegum kröfum fyrir millifærslur fjármuna og beingreiðslur í evrum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009 var, ásamt reglugerð (EB) nr. 924/2009, innleidd í íslenskan rétt með lögum um greiðslur yfir landamæri í evrum, nr. 78/2014. Í greinargerð með frumvarpinu sem varð að lögunum segir að markmið reglugerðanna sé að veita borgurum og fyrirtækjum samræmda, örugga, notendavæna og áreiðanlega greiðsluþjónustu í evrum á samkeppnishæfu verði innan EES, jafnframt því að tryggja að gjöld vegna greiðslna í evrum yfir landamæri ríkja innan EES séu hliðstæð því sem gerist vegna greiðslna í evrum innanlands.

Í áformuðu frumvarpi verður kveðið á um ný lög um greiðslur yfir landamæri í evrum sem fella brott samnefnd lög nr. 78/2014. Helstu efnislegu breytingarnar frá gildandi lögum nr. 78/2014 eru að skýrari rammi verður settur um þær upplýsingar sem greiðsluþjónustuveitendum verður skylt að veita neytendum varðandi kostnað við gjaldmiðilsumreikning áður en greiðsla fer fram. Um er að ræða viðbótarráðstafanir til að vernda neytendur gegn óhóflegum gjöldum vegna gjaldmiðilsumreiknings.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

fjr@fjr.is