Til umsagnar
8.12.2023–5.1.2024
Í vinnslu
6.1.–26.6.2024
Samráði lokið
27.6.2024
Mál nr. S-256/2023
Birt: 8.12.2023
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Áform um frumvarpið voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum island.is (mál nr. S-256/2023) 8. desember 2023 til 5. janúar 2024. Ein umsögn barst þar sem spurt var um ýmis atriði sem lúta að mestu ákvarðanavaldi félagsins og með hvaða hætti eignir ríkisins verða færðar til félagsins. Leitast verður við að taka tillit þeirra athugasemd sem báurst við áframhaldandi vinnslu frumvarps.
Þörf er á að endurskoða núgildandi lagaramma um NLSH ohf. þannig að hann samræmist betur þeirri þróun sem hefur orðið á hlutverki félagsins.
Í ljósi þeirra breytinga sem hafa orðið á verkefnum og skipulagi NLSH ohf. er talin þörf á að endurskoða núgildandi lagaramma þannig að hann samræmist betur breyttu hlutverki félagsins. Hlutverk félagsins takmarkast ekki lengur eingöngu við uppbyggingu nýrra húsa við Hringbraut eins og núgildandi lagarammi miðast við.
Umsagnir voru birtar að loknum umsagnarfresti. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stjórnunar og umbóta
fjr@fjr.is