Til umsagnar
4.–18.12.2023
Í vinnslu
19.12.2023–25.8.2024
Samráði lokið
26.8.2024
Mál nr. S-254/2023
Birt: 4.12.2023
Fjöldi umsagna: 16
Annað
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Þann 4.12.2023 hófst tveggja vikna kynningar- og samráðsferli í samræmi við ákvæði fyrri hluta 3. mgr. 10. gr. laga nr. 48/2011. Þetta samráðsferli, stóð til 18. desember 2023. Verkefnisstjórn taldi ekki ástæðu til að gera breytingar á tillögunum áður en seinna samráðið hófst. Allar þær ábendingar og athugasemdir sem verkefnisstjórn bárust eftir 2 vikna samráðsferilinn verða teknar til frekari skoðunar að loknu hinu lögbundna 12 vikna umsagnarferli.
Verkefnastjórn rammaáætlunar kynnir drög að tillögum um mat og flokkun á virkjunarkostunum Héraðsvötn, Skrokkölduvirkjun, Kjalölduveita, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun.
Við afgreiðslu á 3. áfanga rammaáætlunar gerði Alþingi breytingar á tillögu um röðun nokkurra virkjunarkosta og óskaði eftir að tiltekin atriði í mati verkefnisstjórnar væru skoðuð nánar. Breytingar Alþingis voru að færa virkjunarkostina Héraðsvötn og Kjalöldu úr verndarflokki í biðflokk og Holtavirkjun, Urriðafossvirkjun og Skrokkölduvirkjun úr nýtingarflokki í biðflokk.
Tilmæli Alþingis voru sett fram í nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar og tilgreind þau atriðið sem ráðherra er falið að láta skoða nánar. Í framhaldi af afgreiðslu nefndarinnar fékk verkefnisstjórn minnisblað frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu dags. 12. september 2022 þar sem verkefnisstjórn er falið það að vinna endurmat á þessum virkjunarkostum. Þar er því jafnframt beint sérstaklega til verkefnisstjórnar, að miða umfjöllun um áður nefnda virkjunarkosti við það sem fram kemur í nefndaráliti meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar frá 10. júní sl. (þingskjal 1210, 332. mál á 152. löggjafarþingi).
Verkefnisstjórn yfirfór þessi tilmæli og fól viðkomandi faghópum að vinna greiningar á þeim atriðum sem koma fram og óskað er eftir í nefndarálitinu fyrir hvern virkjunarkost. Þær greiningar liggja nú fyrir og er þær að finna sem fylgiskjöl með þessari greinargerð. Þar sem þetta er endurmat á ákveðnum atriðum varðandi viðkomandi virkjunarkosti er mikilvægt að hafa jafnframt í huga greiningar á öðrum þáttum sem voru settar fram í lokaskýrslu verkefnisstjórnar 3. áfanga. Sú lokaskýrsla fylgir því einnig hér með.
Verkefnisstjórn hefur fengið kynningar á og farið yfir niðurstöður úr vinnu faghópanna og metið í samhengi við greiningar á öðrum þáttum fyrir viðkomandi virkjunarkosti. Á þeim grunni gerir verkefnisstjórn tillögur til ráðherra að röðun þessara virkjunarkosta og eru þær tillögur hér settar fram í opna, almenna umsögn.
Í lögum um verndar og orkunýtingaráætlun eru skilgreind tvö umsagnarferli. Þetta er fyrra umsagnarferlið um drög að tillögum verkefnisstjórnar, sem gert er ráð fyrir að taki tvær vikur. Í framhaldi af því er svo gert ráð fyrir að hefja formlegt 12 vikna umsagnarferli um tillögur verkefnisstjórnar.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Verkefnastjórn rammaáætlunar
ust@ust.is