Til umsagnar
29.11.–11.12.2023
Í vinnslu
12.12.2023–
Samráði lokið
Mál nr. S-249/2023
Birt: 29.11.2023
Fjöldi umsagna: 6
Drög að frumvarpi til laga
Forsætisráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Frumvarpið miðar að því að styrkja heimildir Seðlabankans til að efla viðnámsþrótt í greiðslumiðlun hér á landi og með því stuðla að fjármálastöðugleika og þjóðaröryggi.
Frumvarpið er samið í forsætisráðuneytinu í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið og Seðlabanka Íslands og miðar að því að styrkja heimildir Seðlabankans til að efla viðnámsþrótt í greiðslumiðlun hér á landi og með því stuðla að fjármálastöðugleika og þjóðaröryggi.
Á árinu 2019 kom Seðlabankinn á framfæri áhyggjum við þjóðaröryggisráð vegna þess hve smágreiðslumiðlun í landinu væri háð fáum erlendum aðilum. Yfir 90% af öllum slíkum greiðslum fara nú um greiðslukortainnviði alþjóðlegu kortasamsteypanna. Einnig byggja flestar íslenskar fjártæknilausnir á þessum sömu innviðum. Sú samþjöppunaráhætta er ekki ásættanleg fyrir íslenskt efnahagslíf og þörf er á fleiri valkostum í greiðslumiðlun hér á landi.
Málið hefur verið rætt ítrekað í þjóðaröryggisráði og hefur ráðið tekið undir áhyggjur Seðlabankans. Þá hefur aukin notkun á rafrænni greiðslumiðlun leitt til fjölgunar í netárásum og hagnýtingu á veikleikum í hugbúnaði. Þá steðjar aukin ógn að fjarskiptainnviðum vegna óróa í alþjóðasamfélaginu nú um stundir. Því er mikilvægt að huga heildstætt að rekstraröryggi greiðslumiðlunar í landinu. Seðlabankinn gegnir þar mikilvægu hlutverki en núgildandi lög veita ekki nægilega skýrar heimildir til viðbúnaðar til að tryggja örugga og virka greiðslumiðlun.
Undanfarin ár hefur Seðlabankinn átt í viðræðum við banka og sparisjóði um leiðir til að auka viðnámsþrótt greiðslumiðlunar hér á landi, m.a. með endurskipulagningu fjármálainnviða, viðbragðsáætlunum um seðladreifingu, gervihnattasambandi fyrir greiðslumiðlun auk viðræðna um að koma á fót innlendri óháðri smágreiðslumiðlun. Með frumvarpinu eru heimildir Seðlabankans styrktar til að gera auknar kröfur varðandi umgjörð innviða greiðslumiðlunar.
Í þessu sambandi er horft til þess að neytendum verði gert kleift að greiða fyrir vöru og þjónustu með millifærslu milli tveggja bankareikninga. Forsenda er að til verði nýr grunninnviður sem byggir á þeim kerfum sem þegar eru til staðar. Talið er að slíkt myndi jafnframt stuðla að aukinni samkeppni á greiðslumarkaði og opna á frekari framfarir og notkun fjártækni í greiðslumiðlun. Árangursrík innleiðing myndi jafnframt skapa tækifæri til hagræðingar, lækkunar kostnaðar eða aukins ábata söluaðila og neytenda.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stjórnskipunar og stjórnsýslu
for@for.is