Til umsagnar
22.–28.11.2023
Í vinnslu
29.11.2023–4.4.2024
Samráði lokið
5.4.2024
Mál nr. S-244/2023
Birt: 22.11.2023
Fjöldi umsagna: 2
Drög að frumvarpi til laga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Frumvarpið var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 22.-28. nóvember 2023. Frumvarpið hafði áður verið kynnt í samráðsgáttinni 24. mars - 3. apríl 2023, sjá mál S-76/2023, nokkrar breytingar urðu á frumvarpinu haustið 2023 og frumvarpið því kynn aftur í samráðsgáttinni. Tvær umsagnir bárust um frumvarpið í nóvember 2023. Umfjöllun um umsagnir og viðbrögð við þeim má finna í samráðskafla frumvarpsins eins og það var lagt fram á Alþingi, sjá nánar um þinglega meðferð málsins: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/154/627/?ltg=154&mnr=627
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá o.fl. lögum v. ákvæða í tilskipunum og reglugerðum ESB um samtengingarkerfi skráa skv. 22. gr. tilskipunar 2017/1132.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um fyrirtækjaskrá og fleiri lagabálkum vegna ákvæða í tilskipunum ESB og framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnar ESB um samteningu aðal-, fyrirtækja- og félagaskráa aðildarríkjanna skv. 22. gr. tilskipunar (ESB) 2017/1132. Í ákvæðum tilskipunarinnar og framkvæmdareglugerða framkvæmdastjórnarinnar settra á grundvelli hennar er kveðið á um að nánar tilgreindar upplýsingar um hlutafélög, einkahlutafélög og útbú erlendra hlutafélaga og einkahlutafélaga skuli vera aðgengilegar í gegnum samteningarkerfið. Einnig er í tilskipun (ESB) 2015/849 og framkvæmdarreglugerð sem sett er á grundvelli 31. gr. a tilskipunarinnar kveðið á um aðgang lögbærra yfirvalda og tilkynningaskyldra aðila eins og þeir eru skilgreindir í tilskipuninni að upplýsingum um raunverulega eigendur lögaðila í gegnum samteningarkerfið.
Frumvarpið var áður birt í samráðsgátt stjórnvalda sl. vor en engar umsagnir bárust. Frumvarpinu hefur verið breytt nokkuð til einföldunar frá því það var kynnt í samráðsgáttinni sl. vor og þykir því rétt að gefa aftur stuttan frest til umsagna.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa viðskipta og ferðamála
sigurbjorg.stella.gudmundsdottir@atrn.is