Til umsagnar
21.11.–12.12.2023
Í vinnslu
13.12.2023–25.11.2024
Samráði lokið
26.11.2024
Mál nr. S-240/2023
Birt: 21.11.2023
Fjöldi umsagna: 5
Stöðumat og valkostir
Dómsmálaráðuneytið
Fjölskyldumál
Umsögnum hefur verið komið til sifjalaganefndar til skoðunar.
Til stendur að taka hjúskaparlög nr. 31/1993 til heildarendurskoðunar. Hægt er að koma athugasemdum eða ábendingum á framfæri sem gætu gagnast vegna endurskoðunarinnar.
Dómsmálaráðherra hefur skipað þriggja manna sifjalaganefnd til þess að vinna að endurskoðun á hjúskaparlögum og barnalögum og hefur nefndin þegar tekið til starfa. Umfangsmikil verkefni eru fram undan í tengslum við endurskoðun umræddra laga.
Nefndin skal skila ráðherra drögum að lagafrumvörpum fyrir 1. september 2024, annars vegar drögum að frumvarpi til breytinga á hjúskaparlögum og eftir atvikum breytingum á öðrum lögum, og hins vegar drögum að frumvarpi til breytinga á barnalögum og eftir atvikum breytingum á öðrum lögum.
Allir sem vilja koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri sem gætu gagnast í endurskoðuninni eru hvattir til þess að senda umsögn. Unnt er að koma á framfæri almennum ábendingum um hjúskaparlögin en einnig um sérstök atriði laganna sem talin eru þurfa á endurskoðun að halda.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa réttinda einstaklinga
dmr@dmr.is