Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 1.–20.11.2023

2

Í vinnslu

  • 21.11.2023–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-217/2023

Birt: 1.11.2023

Fjöldi umsagna: 4

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Breyting á lögum um aðför og lögum um nauðungarsölu (stafræn málsmeðferð)

Málsefni

Innleiðing stafrænna lausna við meðferð fullnustumála hjá sýslumönnum og dómstólum.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á fullnustulöggjöf, það er lögum um aðför nr. 90/1989 og lögum um nauðungarsölu nr. 90/1991, svo unnt verði að beita í auknum mæli stafrænum lausnum við meðferð fjárnámsmála og nauðungarsölumála.

Með frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að þar sem áskilið er í lögum að gögn skuli vera skrifleg, þau undirrituð eða birt með sannanlegum hætti, þá skuli gögn á stafrænu formi, fullgild rafræn undirritun og birting í stafrænu pósthólfi teljast fullnægjandi. Í öðru lagi er lagt til að áskilnaði um áritun héraðsdómara eða sýslumanns megi fullnægja með rafrænni áritun eða rafrænni færslu ef skjalið sem krefst áritunar er á stafrænu formi. Í þriðja lagi er mælt fyrir um í frumvarpinu að sýslumaður geti ákveðið að fyrirtökur fari fram á fjarfundi og telst það fullnægjandi mæting af hálfu málsaðila. Í fjórða lagi er lagt til að sýslumanni sé heimilt að ákveða að aðfarargerð fari fram án mætingar málsaðila og að fella niður fyrirtökur í nauðungarsölumáli að ákveðnum skilyrðum fullnægðum. Í fimmta lagi er lagt til að heimilt sé að starfrækja vefgátt, sem ætlað er að vera stafrænn vettvangur fyrir samskipti málsaðila, sýslumanns og dómara, þar sem hægt verður að nálgast á einum stað upplýsingar um stöðu stafræns fullnustumáls, leiðbeiningar og tilkynningar. Að lokum er í frumvarpi þessu lagt til að þar sem áskilið er í nauðungarsölulögum að auglýsing skuli birt í Lögbirtingablaði þá skuli auglýsing á vef sýslumanna teljast fullnægjandi.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa réttarfars og stjórnsýslu

dmr@dmr.is