Til umsagnar
1.–15.11.2023
Í vinnslu
16.11.2023–12.3.2024
Samráði lokið
13.3.2024
Mál nr. S-215/2023
Birt: 1.11.2023
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Fjölskyldumál
Engin umsögn barst um drög að frumvarpinu. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 26. janúar 2024, sjá hlekk hér að neðan.
Frumvarpið felur í sér breytingar á 15. gr. barnaverndarlaga varðandi endurgreiðslur ríkissjóðs.
Frumvarpið felur í sér afmarkaðar breytingar á 15. gr. barnaverndarlaga í því skyni að skýra nánar þær reglur sem gilda um endurgreiðslur ríkissjóðs vegna barnaverndarþjónustu sem er veitt samkvæmt lögunum til barna sem ekki hafa fasta búsetu á Íslandi eða barna sem eru án forsjáraðila sinna og hafa hlotið alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi hér á landi. Eftir rýni á túlkun og beitingu endurgreiðslureglna 15. gr. laganna hefur komið í ljós að þær eru komnar nokkuð til ára sinna og þykja ekki endurspegla þróun síðustu ára m.a. vegna fjölgunar í hópi framangreindra hópa barna. Er því lagt til að orðalag sérstöku endurgreiðslureglnanna í 5. og 6. mgr. verði skýrt og samræmt. Þá er lagt til að orðalagi reglugerðarheimildar í 6. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga verði breytt til að styðja við samræmingu þeirra sjónarmiða sem gilda um þjónustu og endurgreiðslur ríkissjóðs á grundvelli 5. og 6. mgr. 15. gr. laganna.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa ráðneytisstjóra og innri þjónustu
mrn@mrn.is