Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 23.10.–6.11.2023

2

Í vinnslu

  • 7.11.2023–6.3.2024

3

Samráði lokið

  • 7.3.2024

Mál nr. S-203/2023

Birt: 23.10.2023

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Brottfall úreltra laga á fjármálamarkaði

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust. Ráðuneytinu bárust aftur á móti ábendingar frá Ríkisábyrgðasjóði um að varkárara gæti verið að halda í gildi lögum sem heimiluðu stjórnvöldum að veita ábyrgðir í þágu alþjóðlegra stofnana. Þá væri í lögum um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands, nr. 50/1997, mælt fyrir um ríkisábyrgð sem gæti enn haft þýðingu. Með tilliti til ábendinganna er í frumvarpinu ekki gert ráð fyrir brottfalli lagabálka í kafla 29. c í lagasafninu um alþjóðlegar lána- og fjármálastofnanir né laga um stofnun hlutafélaga um Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands.

Málsefni

Áformað er að fella brott fimmtíu lagabálka á fjármálamarkaði sem eru taldir úreltir eða hafa lokið hlutverki sínu.

Nánari upplýsingar

Viðkomandi lagabálkar eiga ekki lengur við, ýmist sökum breyttra aðstæðna, vegna þess að hlutverk þeirra var afmarkað í tíma eða sökum þess að fyrirhugaðar ráðstafanir komu ekki til framkvæmda. Að óbreyttu standa þeir áfram í lagasafninu að þarflausu.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

gunnlaugur.helgason@fjr.is