Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 22.10.–20.11.2023

2

Í vinnslu

  • 21.11.2023–11.8.2024

3

Samráði lokið

  • 12.8.2024

Mál nr. S-202/2023

Birt: 22.10.2023

Fjöldi umsagna: 10

Áform um lagasetningu

Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegur og fiskeldi

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um lagareldi

Málsefni

Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um lagareldi ásamt frummati á áhrifum lagasetningar.

Nánari upplýsingar

Áformað er að setja ný heildarlög um lagareldi (sjókvía-, land-, úthafs- og þörungaeldi). Frumvarpinu er meðal annars ætlað að bregðast við þeim athugasemdum sem fram komu í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar svo skapa megi lagareldi skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Þannig verður í frumvarpinu að finna ákvæði sem taka meðal annars til hertara eftirlits, aukinna rannsókna, leyfisveitinga og gjaldtöku af sjókvíaeldi og skiptingu tekna.

Þá verður að finna í frumvarpinu kafla um landeldi, úthafseldi og þörungarækt, s.s. er varða eftirlit og leyfisveitingar í greinunum. Hingað til hafa reglur um landeldi verið lítt sérsniðnar að kröfum greinarinnar og ætlunin er að bæta úr því með frumvarpi þessu. Lagaramma utan um greinar úthafseldis og þörungaræktar hefur alveg skort til þessa.

Samning frumvarpsins stendur yfir og samhliða því verður unnið að endanlegu mati á fjárhagsáhrifum lagasetningarinnar og því gerð skil í endanlegu mati á fjárhagslegum áhrifaþáttum fyrir ríkið.

Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um áform um lagasetningu og frummat.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa matvæla

hjalti@mar.is