Til umsagnar
20.10.–8.11.2023
Í vinnslu
9.11.2023–25.1.2024
Samráði lokið
26.1.2024
Mál nr. S-199/2023
Birt: 20.10.2023
Fjöldi umsagna: 5
Drög að frumvarpi til laga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Háskólastig
Alls bárust fimm umsagnir um frumvarpið, frá Háskóla Íslands, hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri, Samtökum iðnaðarins (SI) og einstaklingi. Tekið var tillit til athugasemda, meðal annars að því er varðar hvenær frumvarpið verður að fullu komið til framkvæmda og gefinn frestur til undirbúnings.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á lögum um háskóla, nr. 63/2006.
Frumvarpinu er ætlað að lögfesta heimild háskóla til að bjóða upp á svokallað örnám til námseininga ásamt því að færa reglur um prófgráður og námsframboð háskóla nær þeim viðmiðum og þeim hæfniramma sem Ísland hefur skuldbundið sig til að virða. Sá hæfnirammi byggir á Bologna samstarfinu sem myndar evrópska háskólasvæðið (EHEA). Frumvarpið er einnig liður í uppfærslu á gildandi viðmiðum um æðri menntun og prófgráður sem voru birt í Stjórnartíðindum með auglýsingu nr. 530/2011. Unnið hefur verið að breytingum á gildandi viðmiðum í nokkurn tíma og voru drög að nýjum viðmiðum um æðri menntun og prófgráður birtar í Samráðsgátt stjórnvalda í febrúar 2022. Helstu breytingar eru þær að lágmark ECTS eininga til diplómaprófs og viðbótarprófs á meistarastigi hækkar úr 30 stöðluðum námseiningum í 60 námseiningar, í öðru lagi í því að kynna og skilgreina örnám og styttri námsleiðir til ECTS eininga, sem hluta af bakkalár-, meistara- eða doktorsnámi og í þriðja lagi í því að opna á möguleika á veitingu svokallaðs M. Phil prófs á doktorsstigi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðamála
hvin@hvin.is