Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 11.–19.10.2023

2

Í vinnslu

  • 20.–19.10.2023

3

Samráði lokið

  • 20.10.2023

Skjöl til samráðs

Fylgiskjöl

Mál nr. S-194/2023

Birt: 11.10.2023

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegur og fiskeldi

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði)

Niðurstöður

Ein umsögn um málið barst í samráðsgátt. Í umsögninni kom m.a. fram að breytingatillagan sé til bóta en skerpa þurfi á nokkrum atriðum sem hægt væri að útfæra nánar í reglugerð um leyfisveitingar, einkum er varðar skilgreiningu á hvað felist í prófunum, um ráðstafanir til að koma í veg fyrir afla sé slíkt unnt sbr. markmið prófana, um ákveðin svæði fyrir prófanir, um skyldu um sjálfvirka ferilvöktun skipa og að Fiskistofa upplýsi Landhelgisgæsluna um tímasetningu og staðsetningu eftirlits og Hafrannsóknastofnun um aflaupplýsingar. Hægt verður að kveða á um ofangreind atriði í reglugerð.

Málsefni

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á 13. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 um leyfi til prófana á vinnslu- og veiðarfærabúnaði.

Nánari upplýsingar

Kveðið á um nýja málsgrein í 13. gr. laga nr. 79/1997, um heimild fyrir ráðherra að veita skipum, sem hafa annars ekki leyfi til að stunda veiðar og vinnslu í fiskveiðilandhelginni, skilyrt, takmörkuð og tímabundin leyfi, til prófana á nýjum vinnslu- og veiðarfærabúnaði sem settur hefur verið í skipin hér á landi. Mikilvægt er að Ísland sem fiskveiðiþjóð hafi öfluga þjónustustarfsemi sem styður við nýtingu auðlinda úr sjó og að sú starfsemi sé samkeppnishæf við sambærilega starfsemi í öðrum ríkjum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa sjávarútvegs

mar@mar.is