Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 4.–18.10.2023

2

Í vinnslu

  • 19.10.2023–

Samráði lokið

Mál nr. S-185/2023

Birt: 4.10.2023

Fjöldi umsagna: 5

Áform um lagasetningu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Orkumál

Viðskiptavettvangur raforku

Málsefni

Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir áform um breytingu á raforkulögum í tengslum við viðskiptavettvang raforku.

Nánari upplýsingar

Allt frá gildistölu núgildandi raforkulaga hefur verið í lögunum sérstök heimild fyrir flutningsfyrirtækið Landsnet til þess að reka raforkumarkað. Þá er í 18. gr. a laganna ákvæði sem fjallar um leyfisskyldu aðila (annarra en flutningsfyrirtækið Landsnet) til að reka raforkumarkað. Ekki er tilgreint með ítarlegum hætti hvað fellur undir 18. gr. a, en samkvæmt skilgreiningu laganna (15. tl. 3. gr.) er það ”skipulegur markaður með raforku”. Skýra þyrfti nánar hvaða starfsemi félli þar undir.

Þannig gera raforkulög ráð fyrir rekstri skipulegs raforkumarkaðar en í lögunum er ekki fjallað um háttsemi aðila á raforkumarkaði né gagnsæi. Til samanburðar er í V. kafla laganna fjallað um leyfisbindingu raforkusölu, skilyrði fyrir leyfi, skyldur leyfishafa og orkusölusamninga.

Af því tilefni er talið nauðsynlegt að í lögunum verði nánar fjallað um skyldur leyfishafa til reksturs skipulegs raforkumarkaðar, skyldur aðila sem nota slík kerfi og eftirlit.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa umhverfis og skipulags

postur@urn.is