Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 4.–18.10.2023

2

Í vinnslu

  • 19.10.2023–7.11.2025

3

Samráði lokið

  • 8.11.2025

Mál nr. S-184/2023

Birt: 4.10.2023

Fjöldi umsagna: 3

Áform um lagasetningu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Orkumál

Þjónustugjöld Orkustofnunar

Niðurstöður

Frumvarp birt til umsagnar, mál nr. 21/2024.

Málsefni

Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs áform um lagasetningu um þjónustugjöld Orkustofnunar.

Nánari upplýsingar

Helstu lagabálkar auðlindanýtingar sem Orkustofnun starfar eftir, lög nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins (hafsbotnslög), lög nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (auðlindalög), raforkulög nr. 65/2003 og vatnalög nr. 15/1923, eru frá þeim tíma er ráðherra var leyfisveitandi. Við yfirfærslu leyfisveitinga til Orkustofnunar, sbr. lög nr. 131/2011, 132/2011 og 10/2012, var það víðast hvar framkvæmt með einfaldri textabreytingu: „í stað [...]ráðherra í [...] gr. kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Orkustofnun.“ Að öðru leyti er ákvæðum laganna ekki breytt og sjaldnast fjallað sértækt um málsmeðferð eða ferli leyfisveitinga né er þar að finna ákvæði um eftirlit með framkvæmd leyfa. Á þeim rúmum áratug sem liðinn er frá yfirfærslu leyfisveitingahlutverksins hafa engar uppfærslur verið gerðar á þessum ákvæðum í lögunum. Þá eru ákvæði um gjaldtöku vegna leyfisveitinga og eftirlits úrelt eða ekki til staðar.

Að mati ráðuneytis er brýnt að framangreind lög feli í sér lagastoð fyrir heimild Orkustofnunar til töku þjónustugjalda vegna vinnu við leyfisumsóknir vegna auðlindanýtingar, útgáfu leyfa og eftirlits með þeim. Markmið lagasetningarinnar verður að tryggja að Orkustofnun hafi lagaheimild til töku þjónustugjalda vegna vinnu við leyfisumsóknir vegna auðlindanýtingar, útgáfu leyfa og eftirlits með þeim.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar

postur@urn.is