Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 2.–16.10.2023

2

Í vinnslu

  • 17.10.2023–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-180/2023

Birt: 2.10.2023

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fjölskyldumál

Frumvarp til laga um breytingu á barnaverndarlögum nr. 80/2002 og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 (reglugerðarheimildir)

Málsefni

Frumvarpið felur í sér breytingar á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir).

Nánari upplýsingar

Frumvarpið felur í sér afmarkaðar breytingar lögum á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis í því skyni að bæta við heimildum mennta- og barnamálaráðherra til setningu reglugerða. Lagðar eru til breytingar sem heimila mennta- og barnamálaráðherra að setja reglugerðir á grundvelli VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlaga.

Hinn 11. júní 2021 samþykkti Alþingi frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021, sem tók til starfa 1. janúar 2022 og heyrir undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, sbr. forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022. Stofnunin fer með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli nánar tilgreindara laga, þ.m.t. barnaverndarlaga, nr. 80/2002 og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.

Á þeim tíma sem frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála var í vinnslu voru umræddir lagabálkar á málefnasviði þáverandi félagsmálaráðuneytis. Með breytingum á skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands haustið 2021 voru málefni barna og ungmenna, þ.m.t. barnavernd og VIII. kafli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga flutt frá félagsmálaráðuneyti til mennta- og barnamálaráðuneytis. Fer Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála því með eftirlit með gæðum þjónustu á grundvelli lagabálka sem heyra bæði undir mennta- og barnamálaráðuneyti og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, en stofnunin sjálf heyrir undir síðarnefnda ráðuneytið.

Í lögum nr. 88/2021 er að finna fjölmargar heimildir ráðherra til setningu reglugerða. Í þeim tilgangi að samræma og straumlínulaga fyrirkomulag leyfisveitinga og eftirlits var samhliða ákveðið að fella brott sambærilegar heimildir í öðrum lögum, þar á meðal í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlögum. Þegar sú leið var lögð upp var ekki gert ráð fyrir að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála færi með eftirlit með gæðum þjónustu sem heyrði undir annan ráðherra en þann sem fer með yfirstjórn stofnunarinnar, eins og reyndin er í dag. Eftir rýni er talið rétt að gera breytingar á 84., 86. og 91. gr. barnaverndarlaga og 34. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem ákvæðin eru færð til fyrra horfs með því að bæta við þau sambærilegum reglugerðarheimildum og voru í gildi fyrir gildistöku laga nr. 88/2021. Þannig er skýrt er að sá ráðherra, sem fer með yfirstjórn og eftirlit með starfsemi sem þar er fjallað um, hafi heimildir til að setja reglugerðir um starfsemina.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

skrifstofa ráðuneytisstjóra og innri þjónustu

aslaug.magnusdottir@mrn.is