Til umsagnar
28.8.–11.9.2023
Í vinnslu
12.9.–1.10.2023
Samráði lokið
2.10.2023
Mál nr. S-158/2023
Birt: 28.8.2023
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Fjölskyldumál
Engin umsögn barst við áformin.
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um breytingar á ýmsum lögum á sviði málefna barna (reglugerðarheimildir).
Áformað frumvarp felur í sér afmarkaðar breytingar lögum á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis í því skyni að bæta við heimildum mennta- og barnamálaráðherra til setningu reglugerða. Lagðar eru til breytingar sem heimila mennta- og barnamálaráðherra að setja reglugerðir á grundvelli VIII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlaga.
Hinn 11. júní 2021 samþykkti Alþingi frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021, sem tók til starfa 1. janúar 2022 og heyrir undir félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, sbr. forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022. Stofnunin fer með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli nánar tilgreindara laga, þ.m.t. barnaverndarlaga, nr. 80/2002 og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
Á þeim tíma sem frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála var í vinnslu voru umræddir lagabálkar á málefnasviði þáverandi félagsmálaráðuneytis. Með breytingum á skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands haustið 2021 voru málefni barna og ungmenna, þ.m.t. barnavernd og VIII. kafli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga flutt frá félagsmálaráðuneyti til mennta- og barnamálaráðuneytis. Fer Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála því með eftirlit með gæðum þjónustu á grundvelli lagabálka sem heyra bæði undir mennta- og barnamálaráðuneyti og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, en stofnunin sjálf heyrir undir síðarnefnda ráðuneytið.
Í lögum nr. 88/2021 er að finna fjölmargar heimildir ráðherra til setningu reglugerða. Í þeim tilgangi að samræma og straumlínulaga fyrirkomulag leyfisveitinga og eftirlits var samhliða ákveðið að fella brott sambærilegar heimildir í öðrum lögum, þar á meðal í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlögum. Þegar sú leið var lögð upp var ekki gert ráð fyrir að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála færi með eftirlit með gæðum þjónustu sem heyrði undir annan ráðherra en þann sem fer með yfirstjórn stofnunarinnar, eins og reyndin er í dag. Þessar aðstæður kalla á að reglugerðarheimildir séu rýndar að nýju. Mikilvægt er að áfram sé lögð áhersla á að straumlínulaga málsmeðferð en að á sama tíma sé skýrt að mennta- og barnamálaráðherra setur reglugerðir sem varða efnislega framkvæmd mála á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
skrifstofa ráðuneytisstjóra og innri þjónustu
aslaug.magnusdottir@mrn.is