Til umsagnar
28.8.–11.9.2023
Í vinnslu
12.–20.9.2023
Samráði lokið
21.9.2023
Mál nr. S-155/2023
Birt: 28.8.2023
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Fjölskyldumál
Ein umsögn barst um áformaskjalið sem verður tekin til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps. Þegar það frumvarp liggur fyrir verður það sett í Samráðsgátt og gefinn kostur á athugasemdum.
Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um breytingu á 15. gr. barnaverndarlaga varðandi kostnaðarhugtök ákvæðisins.
Á síðastliðnum árum hefur komu umsækjenda um alþjóðlega vernd samkvæmt lögum um útlendinga nr. 80/2016 fjölgað umtalsvert. Samhliða þeirri þróun hefur fjölgað málum þeirra barna sem fá þjónustu samkvæmt barnaverndarlögum. Vegna fjölgunar á þessum málum er þörf á að skilgreina og skýra betur þann kostnað sem ríkissjóður skal endurgreiða barnaverndarþjónustum vegna þjónustu þeirra við þennan hóp barna skv. 15. gr. barnaverndarlaga. Annars vegar er um að ræða börn sem ekki hafa fasta búsetu hér á landi og fjallað er um í 5. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga en hins vegar börn sem eru hér á landi án forsjáraðila og hlotið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á Íslandi, sbr. 6. mgr. ákvæðisins. Markmiðið er að tryggja fullnægjandi þjónustu barnaverndarþjónustu við tiltekinn hóp barna og að skýra heimildir ríkissjóðs til að endurgreiða sveitarfélögum ákveðinn kostnað.
Til stendur að breyta ákvæði 5. og 6. mgr. 15. gr. barnaverndarlaga þannig að ekki verði lengur vísað til greiðslna ríkissjóðs vegna „útlagðs kostnaðar“ hvað varðar börn sem eru ekki með fasta búsetu hérlendis líkt og gert er í ákvæðinu. Í stað þess verði ríkissjóði veitt svigrúm til að mæta betur þeim kostnaði sem af þessum málum hlýst svo ákvæðið nái yfir annan kostnað barnaverndarþjónustu. Barnaverndarþjónustum ber að tryggja að réttindi og þarfir umræddra barna séu uppfylltar, m.a. hvað varðar að tryggja öruggt búsetuúrræði og virkni í samfélaginu. Ekki er gert ráð fyrir að hrófla við reglugerðarheimild ákvæðisins og stefnt er að því að reglur um kostnað sem ríkissjóður endurgreiðir verði frekar útfærðar í reglugerð.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa ráðneytisstjóra og innri þjónustu
mrn@mrn.is