Til umsagnar
25.8.–15.9.2023
Í vinnslu
16.9.2023–25.1.2024
Samráði lokið
26.1.2024
Mál nr. S-153/2023
Birt: 25.8.2023
Fjöldi umsagna: 3
Áform um lagasetningu
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Háskólastig
Þrjár umsagnir bárust um áformaskjalið sem voru teknar til skoðunar við vinnslu frumvarps.
Áformað er að samræma lög um háskóla hinum evrópska hæfniramma um æðri menntun og prófgráður sem Ísland hefur skuldbundið sig til að virða með Bologna samstarfinu (Bologna Process).
Ráðuneytið vinnur að frumvarpi til breytinga á lögum um háskóla þar sem lagt er til að skilgreind námslok skv. lögunum verði nú að lágmarki 60 ECTS einingar í stað 30 ECTS eininga.
Stuttar 30 ECTS námsleiðir (diplómur og viðbótardiplómur) hafa víða verið þróaðar í íslenskum háskólum, sér í lagi innan félagsvísinda, til að mæta sí- og endurmenntunarþörf aðila á vinnumarkaði og auðvelda aðgengi að námi á meistarastigi. Þær rúmast þó ekki innan samevrópska hæfnirammans og fást því oft ekki viðurkenndar til náms og starfa utan Íslands.
Jafnframt breytingum á skilgreindum námslokum er stefnt að því að mögulegt verði að nýta örnám (e. Micro-credentials) sem leið til að koma til móts við þörf á styttra námsframboði á háskólastigi. Slíkt nám getur stutt og eflt starfstengt nám, nýst nemendum sem vilja bæta við sig þekkingu á nýju fagsviði, og sem leið til að auka sveigjanleika og fjölbreytni í námsframboði á háskólastigi.
Þróun örnáms er flaggskip Evrópusambandsins í sí- og endurmenntun á háskólastigi og er unnið að hnökralausu viðurkenningarferli örnáms á alþjóðavettvangi með breytingum á hæfnirömmum háskólastigsins í aðildarríkjum ESB og EHEA. Nauðsynlegt er að þróun íslenska rammans haldi í við þróun þess samevrópska. Örnám er í grunninn sveigjanlegt tæki til að þróa nám svo hægt sé að aðlaga það fjölbreyttum hópi nemenda og náms. Því er aldrei um að ræða lágmarkseiningafjölda sem skilgreindur getur verið sem örnám. Forsenda örnáms er að það sé vel tengt gæðaramma háskólanna og verður að tryggja að skírteinisviðauki fylgi.
Til að núverandi framboð íslenskra háskóla á 30 ECTS diplómanámi fái auðveldlega viðurkenningu milli landa á evrópska háskólasvæðinu er mikilvægt að námið sé skilgreint og gæðavottað samkvæmt evrópskum stöðlum. Sem stendur reynist erfitt fyrir nemendur að fá námið metið til náms eða starfa annars staðar í Evrópu, enda fellur það utan samevrópska hæfnirammans.
Með breytingum þessum er markmiðið að tryggja að Ísland uppfylli þau skilyrði sem sett eru í Bologna samstarfinu til gagnkvæmra viðurkenninga námsgráða og náms á evrópska háskólasvæðinu og nemendum gefinn kostur á námi sem fæst auðveldlega viðurkennt til náms og starfa á alþjóðlegum vettvangi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðamála
hvin@hvin.is